Víða þurrt og bjart en bætir í vind í kvöld Atli Ísleifsson skrifar 29. ágúst 2024 07:08 Hiti á landinu verður átta til fimmtán stig í dag. Vísir/Vilhelm Útlit er fyrir fremur hæga vestlæga átt í dag og að víða verði þurrt og bjart veður, en skýjað og dálítil væta norðaustanlands fram yfir hádegi.
Á vef Veðurstofunnar segir að hiti á landinu komi til með að vera átta til fimmtán stig. „Nú þegar þetta er skrifað er lægð yfir syðsta hluta Grænlands sem nálgast okkur smám saman. Í kvöld og nótt fer að bæta í vind vegna þessarar lægðar og þykknar upp. Á morgun er því spáð sunnan 10-18 m/s með súld eða rigningu, hvassast og úrkomumest norðvestantil á landinu. Hiti 10 til 14 stig. Úrkomusvæði lægðarinnar nær ekki yfir á austanvert landið á morgun og því verður þar hægari vindur og þurrt með hita að 19 stigum. Áðurnefnd lægð vestan við land sameinast síðan annarri lægð á laugardag og öðlast við það aukinn styrk. Þá verður því bæði hvassara og úrkomumeira en á morgun, víða allhvöss eða hvöss sunnanátt og talsverð rigning á laugardag. Áfram útlit fyrir mjög vætusamt veður sunnan- og vestanlands á sunnudag. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Sunnan 8-13 m/s, en 13-18 um landið norðvestanvert. Súld eða rigning, einkum norðvestantil, en yfirleitt þurrt austanlands. Hiti 10 til 19 stig, hlýjast á Austurlandi. Á laugardag: Sunnan og suðaustan 13-20 og víða talsverð rigning, en úrkomulítið á norðaustanverðu landinu. Hægari og dregur úr vætu um kvöldið. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast norðaustantil. Á sunnudag: Suðaustanátt með rigningu, en áfram úrkomulítið og hlýtt norðaustanlands. Á mánudag: Suðvestanátt og dálitlir skúrir, en bjartviðri á austanverðu landinu. Hiti 9 til 17 stig, hlýjast á Austurlandi. Á þriðjudag: Breytileg átt og líkur vætu í flestum landshlutum. Hiti 8 til 13 stig. Á miðvikudag: Norðlæg átt og bjartviðri, en skýjað og lítilsháttar væta á Norður- og Austurlandi og kólnar þar.
Veður Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Sjá meira