Mærudagar á Húsavík eru haldnir á ári hverju síðustu helgina í júlí, en framkvæmdastjóri hátíðarinnar segir mikils að vænta um helgina. Hátíðin var sett í gær en í dag verða matarvagnar og tívolí á bryggjunni.
„Þannig að það verður svona karnivalstemning á bryggjunni, ásamt því að við verðum með hrútasýningu, hrútaþukl, klukkan níu í kvöld. Svo verða alls konar skemmtilegir viðburðir, tónleikar og tvö böll. Allt að gerast í kvöld,“ segir Guðrún Huld Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Mærudaga. Aðaldagurinn verði svo á morgun. Þar verði vegleg barnadagskrá, með froðurennibraut og krakkahlaupi, svo eitthvað sé nefnt.

„Svo erum við með fjögurra klukkutíma tónleikaveislu um kvöldið, Mærudagstónleika. Þá erum við með húsvísku prinsessuna okkar Birgittu Haukdal, ásamt Vidda frá Greifinum, Birni, Daniil, Færibandið og Einar Óla. Við erum með heilan helling af geggjaðri dagskrá.“
Búist er við allt að fjögur þúsund manns þegar mest lætur. Ekkert kostar inn á hátíðina, og því erfitt að mæla aðsóknina með nákvæmum hætti.
Guðrún segir hátíðina gefa bæjarlífi Húsavíkur, sem sé vel sótt allt árið um kring, skemmtilegan brag.
„Að hafa þessa hátíð á Húsavík gefur bænum enn meiri uppfyllingu og auglýsingu um hvað staðurinn er flottur,“ segir Guðrún.
