Norðanátt og víða él á landinu Atli Ísleifsson skrifar 15. apríl 2024 06:57 Frost verður á bilinu null til fimm stig, en frostlaust sunnanlands yfir daginn. Vísir/Vilhelm Dálítil lægð er nú stödd fyrir norðan land og hún þokast til suðausturs í dag. Má reikna með að það verði norðan- og norðvestanátt á landinu, víða átta til fimmtán metrar á sekúndu og él, en bjart að mestu sunnantil.
Frá þessu segir á vef Veðurstofunnar. Frost verður á bilinu núll til fimm stig, en frostlaust sunnanlands yfir daginn. „Lægir í nótt og fyrramálið og birtir til fyrir norðan. Seinnipartinn á morgun nálgast næsta lægð úr vestri og það þykknar upp á sunnan- og vestanverðu landinu, suðaustan 5-15 m/s þar annað kvöld og snjókoma eða slydda með köflum. Fremur hæg vestlæg eða breytileg átt á miðvikudag, dálitlar skúrir eða él og hlýnar heldur,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Vísir/Vilhelm Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Minnkandi norðanátt og bjart með köflum, en dálítil él á norðaustanverðu landinu fram að hádegi. Hiti um eða yfir frostmarki að deginum. Suðaustan 5-15 m/s um kvöldið og slydda eða snjókoma sunnan- og vestanlands. Á miðvikudag: Vestlæg eða breytileg átt 3-10 og dálitlar skúrir eða él, en yfirleitt þurrt austanlands. Hiti 0 til 7 stig, mildast syðst. Á fimmtudag: Norðaustlæg eða breytileg átt 5-13. Snjókoma með köflum og vægt frost, en dálítil rigning eða slydda um landið sunnanvert og hiti 1 til 6 stig. Styttir allvíða upp eftir hádegi, fyrst vestanlands. Á föstudag: Breytileg átt 3-10 og dálitlar skúrir eða él, en rigning suðvestanlands um kvöldið. Hlýnar heldur. Á laugardag: Ákveðin sunnanátt og rigning, en úrkomulítið norðaustantil. Hiti 3 til 10 stig. Á sunnudag: Suðvestan- og vestanátt og skúrir, en þurrt á Austurlandi. Milt í veðri.
Veður Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Sjá meira