Hér má sjá tónlistarmyndbandið:
Í laginu koma Urður og Högni bæði fram. Þau voru á sínum tíma hluti af Gusgus en hafa ekki verið viðloðin hljómsveitina í mörg ár.
„Þegar Gusgus spilaða tónleika Nasa í „Naughty'isinu“ (árin 2003-2007) var Urður vön að syngja gamla Northern Soul slagara yfir endana á sumum Gusgus lögunum því það var hennar uppáhalds tónlist.
Þegar hún kom til baka á plötunni Arabian Horse og undirbúningur á útgáfutónleikum fyrir hana var í undirbúningi, smellti hún laginu Breaking Down við endan á Gusgus laginu Moss sem hafði þá þegar fengið draumkendan endi með viðbótar hljómagangi.
Þessi samsuða á Moss og Breaking Down hefur síðan iðulega verið lokalag hljómsveitarinnar en aldrei komið út fyrr en núna síðasta föstudag. Lagið var tekið upp árið 2013 með Urði og Högna en með í útgáfunni fylgir einnig upptaka af Moss og Breaking Down frá síðustu tónleikum í Eldborg þar sem Margrét Rán og Daníel Ágúst takast á við lagið,“ segir Biggi Veira, meðlimur Gusgus.

Tónlistarmyndband við lagið er í anda teiknimyndasagna Jodorowsky og Moebius, draumkennd nostalgísk framtíðarvitrun. Myndbandið var teiknað af Atla Sigursveinssyni sem sá einnig um lokavinnsluna ásamt Loga Sigursveinssyni.

Gusgus hefur verið mótandi aðili í íslenskri danstónlist í áratugi og eru hvergi nærri hætt. Þau standa meðal annars fyrir tvennum tónleikum í Gamla bíó 10. og 11. maí næstkomandi og verða með tónleika í Eldborg í nóvember.

Hér má hlusta á lagið á streymisveitunni Spotify og hér má sjá myndbandið á Youtube.