Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Þar kemur fram að úrkomubakkinn færist svo yfir á norðanvert landið á morgun og eins gæti orðið eftir einhverjar smáleyfar á Faxaflóasvæðinu fram eftir degi.
Reikna má með suðvestan 8 til 15 metra á sekúndu í dag þar sem verður hvassast og snjókoma öðru hvoru norðvestantil. Heldur hvassaranorðanlands í kvöld. Þá að verði allvíða frostlaust vestantil verður víðast annars staðar núll til fimm stiga frost.
Á föstudag bætir svo smám saman í austanáttina syðst á landinu og mildara loft ýtir kalda loftinu smám saman burt. Svo að helgin verður mild og vætusöm um mest allt land en nýjustu spár benda til að það kólni svo aftur á þriðjudag í næstu viku.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag: Hæg suðlæg eða breytileg átt og víða dálítil él norðantil og stöku él vestantil fyrripartinn, en skýjað með köflum og þurrt suðaustantil. Frostlaust syðst, en frost annars 0 til 8 stig, mest inn til landsins.
Á föstudag: Vaxandi austanátt, 10-15 m/s undir kbvöld og lengst af þurrt, en hægari og bjartviðri norðan- og austantil. Hægt hlýnandi veður.
Á laugardag: Stíf suðaustanátt með rigningu, einkum suðaustanlands, en úrkomulítið fyrir norðan. Hiti 1 til 6 stig.
Á sunnudag og mánudag: Suðlæg átt, væta með köflum og milt veður.
Á þriðjudag: Útlit fyrir suðvestlæga átt með éljum um landið vestanvert og kólnar smám saman.