Albert grátlega nálægt því að jafna þegar Genoa tapaði Smári Jökull Jónsson skrifar 11. febrúar 2024 19:02 Albert var í byrjunarliði Genoa í dag eins og vanalega. Vísir/Getty Atalanta er áfram í fjórða sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir 4-1 sigur á Alberti Guðmundssyni og félögum hans í Genoa á útivelli í dag.
Albert var á sínum stað í byrjunarliði Genoa sem lenti undir á 22. mínútu þegar Charles De Ketelaere skoraði með góðu skoti sem söng í fjærhorninu í marki Genoa. Staðan í hálfleik var 1-0 en í upphafi síðari hálfleiks jafnaði Ruslan Malinovsky metin fyrir Genoa þegar hann skoraði með þrumuskoti fyrir utan teig sem söng í nærhorninu. Staðan orðin 1-1 og leikurinn galopinn. Albert í leiknum í dag.Vísir/Getty Atalanta var reyndar ekki að ná forystunni á ný. Teun Koopmeiners skoraði markið en hann setti þá boltinn í netið beint úr aukaspyrnu. Lið Genoa reyndi hvað það gat til að jafna metin en Atalanta tókst að bæta við marki á 76. mínútu sem var dæmt af vegna ragnstöðu en skoðun myndbandsdómara tók afar langan tíma. Á 88. mínútu fékk Albert síðan algjört dauðafæri til að jafna metin. Boltinn datt þá fyrir hann í markteignum en Marco Carnesecchi í marki Atalanta var fljótur út á móti og varði skot Alberts. Albert fékk lítinn tíma til að ná góðu skoti á markið en færið var engu að síður gott. Undir lokin þegar Genoa hafði hent öllum sínum mönnum fram náði Atalanta inn tveimur mörkum. Fyrst Davide Zappacosta á tíundu mínútu uppbótartíma og El Bilal Toure tveimur mínútum síðar. Atalanta fagnaði 4-1 sigri og er í 4. sæti Serie A en Genoa er í 12. sæti og siglir nokkuð lygnan sjó.
Ítalski boltinn Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Sjá meira