Fer frá ÍBV til Fenerbahce en kemur samt fljótt aftur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. nóvember 2023 13:01 Olga Sevcova í leik með ÍBV en hún hefur skorað 20 mörk fyrir liðið í Bestu deildinni. Vísir/Bára Olga Sevcova, lykilmaður í kvennafótboltaliði ÍBV, hefur gert samning við tyrkneska félagið Fenerbahce en hún var kynnt á miðlum tyrkneska félagsins.
Þessi 31 árs gamli vængmaður yfirgefur nú Vestmannaeyjar og reynir fyrir sér hjá næstefsta liði tyrknesku deildarinnar. Hún er þó alls ekki farin fyrir fullt og allt. Það fylgir sögunni að Olga var líka að skrifa undir nýjan tveggja ára samning við ÍBV. Hún fer því á láni til Tyrklands. Olga kemur því fljótt aftur til Vestmannaeyja. Ailemize ho geldin Olga Sevcova pic.twitter.com/YxdVjj7VUI— Fenerbahçe Petrol Ofisi (@kadinfutbolfb) November 7, 2023 „Það er mikilvægt fyrir ÍBV að halda Olgu hjá félaginu en hún er frábær leikmaður og karakter innan liðsins,“ segir í frétt ÍBV. Fenerbahce hefur náð í 24 stig af 26 mögulegum á þessu tímabili og er með markatöluna 21-3. Yagmur Uraz er markahæsti leikmaður liðsins og deildarinnar með tíu mörk. Efsta liðið í deildinni er Fomget GSK sem er með aðeins einu stigi meira. Sevcova hefur spilað með ÍBV í Bestu deild kvenna undanfarin fjögur tímabil. ÍBV liðið féll úr Bestu deildinni í haust. Í sumar var Olga með sex mörk og tvær stoðsendingar í tuttugu leikjum á 2023 tímabilinu. Hún hefur alls skorað tuttugu mörk fyrir ÍBV í efstu deild. Sevcova er lettnesk landsliðskona og hefur spilað fimmtíu landsleiki fyrir þjóð sína. View this post on Instagram A post shared by I BV Knattspyrna (@ibv.fc)
Besta deild kvenna ÍBV Mest lesið Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Körfubolti Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Körfubolti FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin Íslenski boltinn Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Fótbolti Af hverju fékk Veigar Páll eins árs dóm og hvort fellur KA eða Þór? Sport Öll börn eigi að fá að vera hluti af liðinu Sport Fleiri fréttir FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Matthías í stað Viktors við hlið Sölva „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Svona missti Aron markið sögulega Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Framlengir í Vesturbænum „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Sjá meira