Dregur úr vindi og líkur á næturfrosti víða Atli Ísleifsson skrifar 6. október 2023 07:08 Gert er ráð fyrir að hiti verði á bilinu tvö til sjö stig í dag. Það mun þó frysta allvíða í kvöld. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir minnkandi vindi, breytilegri átt, þremur til átta metrum á sekúndu í dag. Það mun rofa til nokkuð víða, en reikna má með stöku skúrum eða éljum við austur- og suðurströndina.
Á vef Veðurstofunnar segir að hiti verði á bilinu tvö til sjö stig, en að muni frysta allvíða í kvöld. „Hægur vindur og léttskýjað veður eru kjöraðstæður fyrir kólnun þegar kvöldar og það er útlit fyrir að það verði víða frost í nótt. Á morgun gengur í suðvestan golu eða kalda, en stinningskalda um landið norðvestanvert. Það þykknar upp vestanlands og sums staðar dálítil væta á þeim slóðum, en sólríkt austantil á landinu. Hitinn mjakast uppávið aftur og verður 2 til 7 stig þegar kemur fram á morgundaginn,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Suðvestan 3-10 m/s, en 10-15 um landið norðvestanvert. Þykknar upp vestanlands og sums staðar lítilsháttar væta, en léttskýjað austantil á landinu. Hiti 2 til 7 stig yfir daginn. Á sunnudag: Suðvestan 5-15, hvassast á norðanverðu landinu. Víða dálítil væta, en þurrt suðaustan- og austanlands. Hiti 4 til 10 stig. Á mánudag: Suðlæg eða breytileg átt og víða rigning. Hiti 4 til 9 stig. Norðlægari og slydda á Vestfjörðum um kvöldið með kólnandi veðri. Á þriðjudag: Gengur í hvassa norðanátt með rigningu eða slyddu, en snjókomu til fjalla. Þurrt að kalla sunnanlands síðdegis. Hiti 0 til 6 stig, mildast við suðurströndina. Á miðvikudag: Minnkandi norðanátt með éljum á Norður- og Austurlandi, en bjart sunnan heiða. Hiti kringum frostmark. Á fimmtudag: Breytileg átt með rigningu á sunnanverðu landinu, en slyddu eða snjókomu norðantil.
Veður Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Sjá meira