Hitastigið í svalara lagi næstu daga Atli Ísleifsson skrifar 29. september 2023 07:22 Hiti verði á bilinu fjögur til tólf stig að deginum og hlýjast á Suðvesturlandi. Vísir/Arnar Veðurstofan gerir ráð fyrir norðlægri átt í dag, fimm til þrettán metrum á sekúndu og vætu á norðan- og austanverðu landinu. Þá megi reikna með smá skúrum eða slydduéljum um kvöldið.
Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar. Þar segir að það verði bjart að mestu syðra. Hiti verði á bilinu fjögur til tólf stig að deginum og hlýjast á Suðvesturlandi. „Næstu daga er útlit fyrir að lægðagangurinn sunnan og austan við landið muni lítið ná inná land og því mun allmennt vera fremur hófleg úrkoma þar sem hennar gætir. Á móti kemur er að hlýja loftið sem þær bera með sér nær lítið að komast inná land og verður því hitastigið í svalara lagi, einkum þó fyrir norðan og austan,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Gengur í austan- og suðaustan 8-15 m/s með rigningu, en þurrt að kalla fyrir norðan og austan. Hiti 3 til 10 stig, hlýjast suðvestantil. Á sunnudag: Austlæg átt, 5-13 m/s og sums staðar lítilsháttar skúrir eða él. Hiti 1 til 9 stig, svalast norðaustantil. Á mánudag: Norðaustanátt, skýjað að mestu, en sums staðar smá væta við sjávarsíðuna. Hiti 1 til 7 stig, mildast á Suðurlandi. Á þriðjudag: Hæg breytileg átt, víða skýjað og þurrt. Hiti breytist lítið. Á miðvikudag: Vaxandi austan- og norðaustanátt og rigning, en þurrt fyrir norðan fram eftir degi og síðar rigning eða slydda þar. Hiti 1 til 8 stig, mildast syðst. Á fimmtudag: Útlit fyrir ákveðna norðaustanátt með slyddu eða snjókomu fyrir norðan en rigningu eða slyddu syðra. Fremur kalt í veðri.
Veður Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Sjá meira