Albert kom Genoa á bragðið í leiknum í gær og Mateo Retegui, Morten Thorsby og Junior Messias bættu svo við mörkum. Bryan Cristante skoraði mark Roma sem hefur aðeins unnið einn af fyrstu sex leikjum sínum í ítölsku úrvalsdeildinni.
Mourinho blés hressilega eftir leik en varði líka árangur sinn með Roma síðan hann tók við liðinu fyrir tveimur árum.
„Þetta er það versta á ferlinum,“ sagði Mourinho um tapið. „En ég held að þetta sé líka í fyrsta sinn sem Roma spilar tvo úrslitaleiki í Evrópukeppni í röð.“
Roma vann Sambandsdeild Evrópu undir stjórn Mourinhos í fyrra og komst svo í úrslit Evrópudeildarinnar á síðasta tímabili þar sem liðið tapaði fyrir Sevilla.
Roma er í 16. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar en Genoa í því ellefta.