Kennir þjálfaranum um vonbrigðin á HM Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. ágúst 2023 13:31 Vlatko Andonovski og Lindsey Horan ræðast við eftir að Bandaríkin féllu úr leik fyrir Svíþjóð á HM. getty/Jose Breton Fyrirliði bandaríska kvennalandsliðsins í fótbolta virtist kenna fráfarandi landsliðsþjálfara um slakt gengi Bandaríkjanna á HM. Hún var ekki sátt með leikáætlun hans.
Bandaríkin féllu úr leik fyrir Svíþjóð eftir vítaspyrnukeppni í sextán liða úrslitum á HM. Bandaríska liðinu mistókst því að verða heimsmeistari þriðja sinn í röð. Eftir HM sagði Vlatko Andonovski starfi sínu sem landsliðsþjálfari Bandaríkjanna lausu. Landsliðsfyrirliðinn Lindsey Horan hafði eitt og annað við leikáætlun hans gegn Svíþjóð að segja í viðtali á dögunum og sagði að bandaríska liðið hafi ekki hrokkið almennilega í gegn fyrr en leikmennirnir tóku málin í sínar hendur. „Í leiknum gegn Svíþjóð fannst mér skipulagið ekki beint vera sett upp til að við spiluðum eins og við spiluðum,“ sagði Horan. „Það var ekki fyrr en við komum saman og sögðum: þetta er það sem við ætlum að gera. Þá virkaði þetta og við héldum því áfram. Hefði það getað gerst fyrr? Kannski. Þetta er erfitt.“ Horan sagði jafnframt að ungir leikmenn bandaríska liðsins hefðu ekki náð að blómstra vegna taktísks uppleggs Andonovskis. „Mér fannst við ekki ná því allra besta fram hjá þeim út af því hvernig liðið var sett upp og vegna þess sem við gerðum í leikjum,“ sagði Horan. Sem fyrr sagði hætti Andonovski sem þjálfari Bandaríkjanna eftir HM. Hann hafði stýrt liðinu frá 2019.
HM 2023 í Ástralíu og Nýja-Sjálandi Mest lesið Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti HM-dómara neitað um inngöngu í Bandaríkin Fótbolti Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Íslenski boltinn Andrea opnar sig eftir sjálfsniðurrrif: „Andskotinn hafi það“ Sport Löggan þorði ekki að þiggja miða Fótbolti Eriksen kominn heim og einbeitir sér að fótbolta með krökkunum Fótbolti Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega Enski boltinn „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Fleiri fréttir Wiegman sendi kveðju til Íslands: „Gangi ykkur vel“ Platini með sakamálaákæru á hendur forseta FIFA Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM HM-dómara neitað um inngöngu í Bandaríkin Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega Eriksen kominn heim og einbeitir sér að fótbolta með krökkunum Á HM eftir „grófa“ leiki með KR í Bestu deildinni Van Persie rekinn frá uppeldisfélaginu Svona var fundur Íslands fyrir leikinn við heimsmeistarana Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Hetjunni haldið í yfirheyrslu í sjö tíma við komuna á HM Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Löggan þorði ekki að þiggja miða HM-minning: Fékk ekki þrennuna sína fyrr en þrjátíu árum eftir dauða sinn Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Ollie Kane kynntur til leiks Sjá meira