Úrkoma á stórum hluta landsins í dag Atli Ísleifsson skrifar 21. ágúst 2023 07:15 Hiti á landinu verður frá sex stigum við norðurströndina, upp í sextán stig á Suðurlandi. Vísir/Vilhelm Lægð er nú stödd norður af Langanesi og færist hún til suðvesturs og með henni úrkoma sem nær yfir stóran hluta landsins í dag. Sömuleiðis kemur yfir svalari loftmassi en verið hefur yfir okkur upp á síðkastið.
Frá þessu segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Þar kemur fram að útlit sé fyrir ákveðna norðvestanátt í dag, víða á bilinu átta til þrettán metra á sekúndu. „Það má búast við rigningu norðanlands og síðar einnig á vestanverðu landinu. Þurrt sunnan- og austanlands fram á kvöld. Hiti frá 6 stigum við norðurströndina, upp í 16 stig á Suðurlandi. Aðgerðalítið veður á morgun (þriðjudag), fremur hæg norðlæg eða breytileg átt. Skýjað á austanverðu landinu og smásúld eða þokuloft. Hiti þar á bilinu 8 til 13 stig. Sólríkt vestantil með hita að 18 stigum. Mjög svipað veður áfram í kortunum á hinn daginn (miðvikudag),“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 15 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag og miðvikudag: Norðlæg átt 3-10 m/s. Skýjað norðaustan- og austanlands og smásúld eða þokuloft. Hiti 8 til 13 stig. Bjartviðri á Suður- og Vesturlandi með hita að 20 stigum. Á fimmtudag: Hæg breytileg átt. Viða léttskýjað, en skýjað austanlands framan af degi. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast inn til landsins. Á föstudag: Gengur í suðvestan 5-13. Þykknar upp á vestanverðu landinu og fer að rigna þar um kvöldið. Léttskýjað austantil. Hiti 12 til 22 stig, hlýjast á Austurlandi. Á laugardag: Ákveðin sunnan- og suðvestanátt með rigningu eða súld, en þurrt og hlýtt um landið norðaustanvert. Á sunnudag: Vestlæg átt og dálítil væta, en bjartviðri suðaustan- og austanlands.
Veður Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Fleiri fréttir Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Sjá meira