Creed velur þó enga hefðbundna leið við endurkomuna heldur mun sveitin spila á skemmtiferðaskipi á Karíbahafinu. Tónleikaferðin ber heitið „Summer of 99“ og fer öll fram um borð í skipinu Norwegian Pearl.
Siglt er frá Miami borg í Flórída til Nassau, höfuðborgar Bahama eyja, dagana 18. til 24. apríl á næsta ári. Miðasalan hefst 25. júlí og þeir heppnu fyrstu 500 sem panta miða fá myndatöku með meðlimum Creed í káetu þeirra.
Lygileg velgengni
Hljómsveitin, sem stofnuð var í Tallahassee í Flórída árið 1994, samanstendur af látúnsbarkanum Scott Stapp, gítaristanum Mark Tremonti, bassaleikaranum Brian Marshall og trymblinum Scott Phillips.
Gerði hún garðinn frægan með smellum á borð við „With Arms Wide Open“ og „Higher.“ Plöturnar hafa selst í bílförmum og verðlaunaskápurinn er bólginn.
Creed hættu árið 2004, eftir gríðarlega velgengni, vegna samskiptaerfiðleika á milli Stapp og hinna meðlimanna. Stapp var þá djúpt sokkinn í neyslu brennivíns og annarra nautnalyfja.
Með hjálp Jesú náði Stapp að sigrast á fíkninni og hljómsveitin kom saman aftur árið 2009. Það var hins vegar skammgóður vermir því að árið 2012 hætti hún starfsemi. Stapp hefur hins vegar ávallt sagt að hljómsveitin sé ekki hætt heldur í dvala.
Framtíðin óviss
Creed verða langt því frá einir á siglingunni. En á meðal upphitunarbanda má nefna 3 Doors Down, Buckcherry og The Verve Pipe. Þá bjóða Creed aðdáendum sínum upp á viðburð sem kallast spurningar og svör (Q&A).

Allir sem kaupa miða fá auk þess áritaðan grip frá meðlimum Creed og geta notið hins góða lífs um borð í Norwegian Pearl.
Þrátt fyrir þessar spennandi fréttir hefur ekkert verið gefið upp um önnur framtíðaráform Creed. Hvort að önnur plata sé í vændum eða stærra tónleikaferðalag. Aðdáendur verða að bíða og sjá.