Ört vaxandi lægð nálgast og mun hringsóla yfir landinu fram að helgi Atli Ísleifsson skrifar 27. júní 2023 07:13 Reikna má með stífri norðvestanátt sunnan- og vestantil á landinu á morgun. Vísir/Vilhelm Ört vaxandi lægð nálgast nú landið úr suðri og verður hún skammt suðaustur af landinu í nótt og þá um 977 millibara sem er óvenju lágur þrýstingur miðað við árstíma.
Frá þessu segir á vef Veðurstofunnar. Þar kemur fram að á morgun færist lægðin norður yfir land og grynnist heldur. Lægðin sé þó ekkert á förum, heldur muni hún hringsóla yfir landinu fram að helgi. Un hvessa með morgninum með rigningu um landið suðaustanvert og má þá búast við hvassviðri eða stormi frá Öræfum og vestur undir Eyjafjöll eftir hádegi í dag. Gular viðvaranir taka gildi á Suður- og Suðausturlandi um hádegi og verða í gildi fram á kvöld. „Mun hægari vindur og lengst af bjart Norðan- og vestanlands, en þykknar upp með rigningu þar í kvöld, en þá lægir og dregur úr úrkomu suðaustanlands. Stíf norðvestanátt sunnan- og vestantil á landinu á morgun, en suðaustlægari vindur austast. Rigning eða skúrir í flestum landshlutum. Milt í veðri, hiti að 20 stigum á norðurlandi í dag, en á suðausturlandi á morgun,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Vestlæg eða breytileg átt 8-15 m/s og rigning með köflum, hvassast við ströndina. Hiti 6 til 18 stig, mildast um landið austanvert. Á fimmtudag og föstudag: Vestlæg eða breytileg átt 5-10 og allvíða skúrir. Hiti 8 til 15 stig. Á laugardag: Vaxandi norðaustanátt með rigningu, fyrst um landið norðanvert. Hiti breytist lítið. Á sunnudag og mánudag: Ákveðin norðaustan- og norðanátt og rigning, en lengst af úrkomulítið um landið suðvestanvert. Hiti 12 til 18 stig sunnantil á landinu, en mun svalara fyrir norðan.
Veður Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Sjá meira