Veður

Skýjað og súld en ágætis hiti

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Hér má sjá Íslandskort af veðrinu klukkan tvö í dag. Eins og sjá má er ágætlega hlýtt þó það sé skýjað víða. Á Austurlandi er hins vegar sérstaklega hlýtt.
Hér má sjá Íslandskort af veðrinu klukkan tvö í dag. Eins og sjá má er ágætlega hlýtt þó það sé skýjað víða. Á Austurlandi er hins vegar sérstaklega hlýtt. Veðurstofan

Hæð suður af landinu viðheldur þrálátum suðvestlægum áttum næstu daga. Í dag verður skýjað með rigningu og súld um landið vestanvert en þurrt og hlýtt um landið austanverrt þó ekki verði jafn bjart og hlýtt þar og hefur verið.

Þetta segir spá Veðurstofunnar fyrir daginn í dag.

Þar segir að það verði suðvestlæg átt þrír til tíu metrar á sekúndu og að hiti verði á bilinu átta til sautján stig, þar af verði mildast fyrir austan. Á morgun dragi úr úrkomu en bætir í vind og það kólni. Samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings eru hitatölur á leið niður næstu daga en þær fari svo aftur upp á fimmtudag.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Veðurhorfur næsta daga verða svona samkvæmt Veðurstofunni:

Á mánudag: Suðvestlæg eða breytileg átt þrír til tíu metrar á sekúndu, en átta til þrettán með suðausturströndinni. Skýjað að mestu og stöku skúrir, hiti sjö til tólf stig. Bjart með köflum á Suðaustur- og Austurlandi með hita að sautján stigum.

Á þriðjudag og miðvikudag: Suðvestan og vestan fimm til þrettán metrar á sekúndu. Skýjað og úrkomulítið, en bjart með köflum um landið austanvert. Hiti fimm til fjórtán stig, hlýjast suðaustantil.

Á fimmtudag og föstudag: Suðlæg átt, rigning með köflum og hiti sjö til tólf stig, en lengst af bjart um landið norðaustanvert og hiti þrettán til átján stig.

Á laugardag: Útlit fyrir vestlæga átt og vætu fyrir norðan, en bjart syðra. Kólnar í veðri, einkum norðan heiða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×