Albert enn á ný á skotskónum á Ítalíu Smári Jökull Jónsson skrifar 19. maí 2023 20:42 Albert Guðmundsson hefur verið að gera góða hluti hjá Genoa. Getty Albert Guðmundsson gerði eitt marka Genoa sem vann 4-3 sigur á Bari á heimavelli í ítölsku Serie B deildinni í dag. Þá var Mikael Egill Ellertsson í byrjunarliði Venezia sem lék gegn Parma.
Albert Guðmundsson og félagar hans í Genoa tryggðu sér á dögunum sæti í Serie A deildinni á næstu leiktíð en það er efsta deildin í ítalska boltanum. Í kvöld lék liðið síðasta leik sinn í deildakeppninni á tímabilinu þegar liðið tók á móti Bari á heimavelli. Albert var á sínum stað í byrjunarliðinu og hann var á skotskónum líkt og hann hefur verið undanfarið. Hann skoraði annað mark Genoa á á 34. mínútu eftir sendingu Massimo Coda og kom Genoa þá í 2-1. Staðan var 2-1 í hálfleik en gestunum tókst að jafna um miðjan síðari hálfleikinn en Caleb Ekuban kom Genoa yfir á ný á 75. mínútu. Eftir að Walid Cheddira jafnaði fyrir Bari á 86. mínútu leit allt út fyrir að leikurinn myndi enda með jafntefli. Á lokasekúndunum fékk Genoa hins vegar víti sem Domenico Criscito skoraði úr og tryggði Genoa sigur. Hinn margreyndi Criscito hafði komið inn af bekknum tveimur mínútum áður fyrir Albert Guðmundsson og var ekki lengi að setja mark sitt á leikinn. Mikael Egill Ellertsson var í byrjunarliði Venezia sem tapaði 2-1 á útivelli gegn Parma. Mikael Egill var tekinn af velli á 62. mínútu en þá var staðan 1-1. Þrátt fyrir tapið náði Venezia sæti í umspili um sæti í úrvalsdeildinni en liðið endaði í 8. sæti og fer í keppni við liðin í 5. - 8. sæti um sæti í öðru umspili þar sem liðin í 3. - 4. sæti bíða. Þá sat Hjörtur Hermannsson allan tímann á bekknum hjá Pisa sem tapaði á heimavelli gegn Spal. Pisa lýkur keppni í 11. sæti deildarinnar.
Ítalski boltinn Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Fótbolti Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Fleiri fréttir Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Sjá meira