Um var að ræða algjöran toppslag í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar sem endaði að lokum með jafntefli en lærisveinar Guðmundar hjá Federicia voru einu marki yfir, 33-32, þegar rúmar tíu sekúndur eftir lifðu leiks.
GOG hélt fram í sókn og þegar að rúmar fimm sekúndur voru eftir af leiktímanum kom Simon Pytlick boltanum í netið og jafnaði leikinn, 33-33.
Guðmundur Guðmundsson átti inni leikhlé á þessari stundu en hann kaus að taka það ekki, ákvörðun sem fjölmiðlar ytra hafa velt mikið fyrir sér.
GOG 33-33 Fredericia HK
— Rasmus Boysen (@RasmusBoysen92) May 7, 2023
Another dramatic match from the Danish playoff. FHK was so close to secure the semifinal spot - but nothing decided before the last round!
: TV2 Play#handball pic.twitter.com/wyq1NBioB5
„Ég kaus að gera þetta svona af því að þeir voru að spila 7 á móti 6 á okkur. Við hefðum geta skorað í autt markið,“ sagði Guðmundur um ákvörðun sína í samtali við TV2 Sport. „Það hefði verið illa gert að reyna ekki að nýta sér það. Við vorum nálægt því að láta þetta ganga upp.“
Planið hafi verið að keyra hraða miðju á GOG og freista þess að koma boltanum í autt markið og stela þar með sigrinum. Lasse Balstad, leikmaður GOG, var hins vegar fljótur að átta sig og tókst að koma í veg fyrir að skot Federicia endaði í netinu.
„Þeir skoruðu fimm sekúndum fyrir leikslok og þá höfum við lítinn tíma til þess að bregðast við. Þetta var það sem við ætluðum okkur og ég er viss um að það hafi verið það besta í stöðunni.“
Sigur hefði tryggt Federicia sæti í undanúrslitum dönsku úrvalsdeildarinnar. Þó svo að það hafi ekki náðst í þessari umferð stendur liðið vel að vígi fyrir síðustu umferðina í 2. sæti B-riðils.
Jafntefli í lokaleiknum, sem er útileikur gegn Skanderborg, tryggir lærisveinum Guðmundar sæti í undanúrslitum.
„Örlögin eru í okkar höndum, það er gott að vita af því,“ sagði Guðmundur sem er mjög stoltur af leikmönnum sínum.