Venju samkvæmt spáir íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports fyrir um gengi liðanna í Bestu deild kvenna fyrir mótið. Keppni í deildinni hefst þann í dag, 25. apríl, með þremur leikjum. Fyrstu umferðinni lýkur svo 26. apríl með tveimur leikjum.
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir því að Valur endi í 2. sæti Bestu deildar kvenna í sumar og takist ekki að verja Íslandsmeistaratitilinn.
Valur
- Ár í deildinni: 47 tímabil í röð í efstu deild (1977-)
- Besti árangur: Þrettán sinnum Íslandsmeistari (síðast 2022)
- Best í bikar: Fjórtán sinnum bikarmeistari (síðast 2022)
- Sæti í fyrra: 1. sæti
- Þjálfari: Pétur Pétursson (6. tímabil)
- Markahæst í fyrra: Cyera Hintzen, 8 mörk
Valur var langbesta lið síðasta sumars, varð Íslandsmeistari annað árið í röð og vann svo sinn fyrsta bikarmeistaratitil í ellefu ár. Valskonur skoruðu mest allra liða í Bestu deildinni í fyrra (51 mark), fengu á sig fæst (10 mörk) og töpuðu aðeins einum leik. Þær voru því afar vel að árangri sumarsins komnar.
Það hefur hins vegar kvarnast ansi mikið úr meistaraliðinu. Mist Edvardsdóttir, einn besti leikmaður Bestu deildarinnar undanfarin tvö tímabil, sleit krossband í hné undir lok síðasta sumars. Það var fyrsta blóðtakan af mörgum hjá Val.
Eftir tímabilið hættu Ásgerður Stefanía Baldursdóttir og Elín Metta Jensen, Sólveig Jóhannesdóttir Larsen fór til Svíþjóðar, Cyera Hintzen, markahæsti leikmaður Vals á síðasta tímabili hvarf einnig á braut og Sandra Sigurðardóttir hætti korter í mót. Til að bæta gráu ofan á svart sleit stoðsendingadrottning Bestu deildarinnar 2022, Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir, krossband í hné og verður ekkert með í sumar.

Þetta eru risastór skörð sem eru höggin í Valsliðið. Markvörðurinn, markahæsti og stoðsendingahæsti leikmaðurinn eru allar farnar. Og til að setja missinn í smá samhengi eiga leikmennirnir sem eru farnir frá síðasta tímabili eða verða ekki með í sumar samtals 1.190 leiki í efstu deild á Íslandi og samtals 137 landsleiki.
Valur er samt enn með mjög sterkt lið sem verður alltaf í toppbaráttunni. Pétur Pétursson er að hefja sitt sjötta tímabil með Valsliðið en undir hans stjórn hefur liðið þrisvar sinnum orðið Íslandsmeistari og einu sinni bikarmeistari. Hann hefur eflaust hug á að bæta í bikarsafnið en verkefnið er krefjandi og það reynir verulega á þá máttarstólpa sem eftir eru í Valsliðinu.
Liðið og lykilmenn
Eins og farið var yfir hér að ofan hefur Valur misst ofboðslega sterka pósta frá síðasta tímabili. Pétur getur samt enn teflt fram mjög öflugu byrjunarliði. Vörnin er sú sama og í fyrra nema Lillý Rut Hlynsdóttir kemur inn fyrir Mist. Málfríður Anna Eiríksdóttir getur svo leyst allar stöður aftast á vellinum og hin áreiðanlega Rebekka Sverrisdóttir býr líka yfir mikilli reynslu úr efstu deild. Stuðullinn á því að Valsvörnin fái á sig fæst mörk í sumar er býsna hár.
Valur er með efnilegasta markvörð landsins, Fanneyju Ingu Birkisdóttur, og fékk auk þess Kelly Rowswell, bandarískan markvörð. Spennandi verður að sjá hvora þeirra Pétur veðjar á.

Valur þurfti að fá miðjumenn og sótti Hönnu Kallmeier frá ÍBV og Haley Berg frá Danmörku. Hanna er þekkt stærð í Bestu deildinni og hefur staðið sig vel hjá ÍBV en Haley er óskrifað blað. Hanna verður væntanlega við hlið Láru Kristínar Pedersen á miðjunni en hún hefur verið framúrskarandi góð síðan hún gekk í raðir Vals um mitt sumar 2021. Þá verður Þórdís Elva Ágústsdóttir eflaust í stóru hlutverki.
Komnar:
- Jamia Fields frá Avaldsnes
- Kelly Rowswell frá Orlando Pride
- Birta Guðlaugsdóttir frá Stjörnunni
- Ísabella Sara Tryggvadóttir frá KR
- Haley Berg frá Nordsjælland
- Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir frá Aftureldingu
- Hanna Kallmaier frá ÍBV
- Rebekka Sverrisdóttir frá KR
Farnar:
- Brookelynn Entz í HK
- Sólveig Jóhannesdóttir Larsen í Örebro
- Cyera Hintzen í Perth Glory
- Ásgerður Stefanía Baldursdóttir hætt
- Sandra Sigurðardóttir hætt
- Elín Metta Jensen hætt
Mikið mun mæða á Ásdísi Karenu Halldórsdóttur og Ídu Marín Hermannsdóttur að skapa færin fyrir framherja Valsliðsins. Bryndís Arna Níelsdóttir var ekki stór póstur hjá Val í fyrra en fyrsti framherji liðsins í dag. Hún er þefvís á færin og nýtir þau alla jafna vel og getur hæglega komist í tveggja stafa tölu í markaskorun í sumar. Þá fékk Valur bandaríska framherjann Jamiu Fields rétt fyrir fyrsta leik. Hún er með flotta ferilskrá og mun eflaust hjálpa Valskonum í toppbaráttunni í sumar.
Valur fékk líka hina bráðefnilegu Ísabellu Söru Tryggvadóttur frá KR og Guðrúnu Elísabetu Björgvinsdóttur frá Aftureldingu. Sú síðarnefnda hefur verið mikið meidd undanfarin misseri en heil og í topp formi styrkir hún Valsliðið mikið og eykur breiddina fram á við.
Lykilmenn Vals
- Arna Sif Ásgrímsdóttir, 30 ára varnarmaður
- Lára Kristín Pedersen, 28 ára miðjumaður
- Ásdís Karen Halldórsdóttir, 23 ára sóknarmaður
Fylgist með
Fanney Inga gæti fengið og fær vonandi traustið sem aðalmarkvörður Vals í sumar. Hún er markvörður U-19 ára landsliðsins sem komst á EM og er gríðarlega mikið efni. Fanney er nútímamarkvörður, góð í fótbolta og með góðar spyrnur og er stundum eins og ellefti útileikmaðurinn. Framtíðin er hennar.

Í besta/versta falli
Valur verður alltaf í toppbaráttu og erfitt er að sjá liðið fara neðar en 3. sæti. Og þrátt fyrir blóðtökuna getur liðið vel orðið meistari. Reynslan, getan og þekkingin í liðinu er það mikil.