Landsliðsumræðan hafði engin áhrif á Albert sem skoraði tvö fyrir Genoa Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 18. mars 2023 14:54 Albert Guðmundsson lét umræðuna um landsliðið ekki hafa áhrif á sig. Simone Arveda/Getty Images Albert Guðmundsson skoraði tvö mörk fyrir Genoa er liðið vann góðan 3-0 útisigur gegn botnliði Brescia í ítölsku B-deildinni í fótbolta í dag.
Albert hefur verið mikið á milli tannana á fólki undanfarna daga eftir að hann var ekki valinn í íslenska landsliðshópinn fyrr í vikunni sem mætir Bosníu og Liechtenstein í undankeppni EM síðar í mánuðinum. Íþróttafréttamaðurinn Guðmundur Benediktsson, faðir Alberts, var meðal þeirra sem blandaði sér í umræðuna eftir að hópurinn var kynntur. Guðmundur sendi frá sér yfirlýsingu þar sem hann sagðist ekki gera neina kröfu á það að Albert væri valinn í hópinn, en segist ekki lengur ætla að sitja á sér og fylgjast með endalausum árásum að heiðri og persónu Alberts úr fjarska. Þá tjáði Albert Brynjar Ingason sig einnig um málið í hlaðvarpsþætti Dr. Football, og fyrrum landsliðsmaðurinn Eiður Smári Guðjohnsen lagði orð í belg á Twitter-síðu sinni þar sem hann virtist gera hálfgert grín að yfirlýsingu Guðmundar. Vikan hefur því verið nokkuð stormasöm hjá knattspyrnumanninum Alberti, en hann lét það þó ekki á sig fá og skoraði tvö mörk fyrir Genoa er liðið vann öruggan 3-0 útisigur gegn Breschia í dag eins og áður segir. Albert tvöfaldaði forystu Genoa á 71. mínútu eftir að liðið hafði tekið forystuna undir lok fyrri hálfleiks og gulltryggði svo sigurinn með marki í uppbótartíma. Genoa situr í öðru sæti ítölsku B-deildarinnar með 56 stig eftir 30 leiki, fimm stigum fyrir ofan Sudtirol sem situr í þriðja sæti og sjö stigum á eftir toppliði Frosinone. Albert og félagar eru því á góðri leið með að tryggja sér sæti í efstu deild á nýjan leik.
Ítalski boltinn Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Sjá meira