Fallið frá fyrirhugaðri löggjöf um „erlenda aðila“ Hólmfríður Gísladóttir skrifar 9. mars 2023 07:43 Mótmælendur sögðust vilja tilheyra Evrópu, ekki hverfa aftur til Sovét-tímans. AP/Zurab Tsertsvadze Draumaflokkurinn, stærsti þingflokkur Georgíu, hefur ákveðið að draga til baka frumvarp um „erlenda aðila“ eftir hörð mótmæli. Flokkurinn sagðist í yfirlýsingu vilja draga úr átökum í þjóðfélaginu.
Þúsundir mótmæltu frumvarpinu í Tbilisi í gær og í fyrradag og að minnsta kosti 60 voru handteknir við þinghúsið. Óeirðarlögregla var kölluð til og mætti mótmælendum með vatnsbyssum og táragasi. Gagnrýnendur sögðu fyrirhugaða löggjöf ógn við málfrelsi í landinu en samkvæmt frumvarpinu hefðu allar óopinberar stofnanir og fjölmiðlar sem fá meira en 20 prósent rekstrarfés erlendis frá þurft að skrá sig sem „erlenda aðila“. Þá bentu stjórnarandstæðingar á að um væri að ræða áþekk lög og sett voru í Rússlandi árið 2012 og hefur ítrekað verið beitt til að þagga niður í gagnrýnisröddum á þarlend stjórnvöld. Áformin voru enn fremur harðlega gagnrýnd í Bandaríkjunum og Evrópu en Josep Borrell, æðsti yfirmaður utanríkismála hjá Evrópusambandinu, sagði þau ganga gegn gildum sambandsins, sem Georgía vill verða aðili að.
Georgía Evrópusambandið Fjölmiðlar Mannréttindi Mest lesið Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Innlent Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Innlent Margt bendi til þess að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Erlent Alvarlegt bílslys í Öræfum Innlent Stuðningsmenn Assad drápu 14 ráðuneytisstarfsmenn Erlent Grímuskylda á Landspítalanum Innlent Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Innlent Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Innlent Nokkrir látnir í alvarlegu rútuslysi í Noregi Erlent Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Fleiri fréttir Tuttugu ár frá mannskæðustu náttúruhamförum aldarinnar Margt bendi til þess að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Nokkrir látnir í alvarlegu rútuslysi í Noregi Rússneskt olíuflutningaskip í nágrenni sæstrengsins þegar hann rofnaði Stuðningsmenn Assad drápu 14 ráðuneytisstarfsmenn Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Alls kyns jól um allan heim Um helmingur farþega komst lífs af Rússar fagna vel heppnaðri árás á orkuinnviði Úkraínu Þau kvöddu á árinu 2024 Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Sjá meira