Útlit fyrir skaplegt verður eftir hádegi en hvessir í kvöld Atli Ísleifsson skrifar 9. febrúar 2023 07:11 Hiti verður um eða undir frostmarki. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir að það dragi úr vindi og úrkomu með morgninum og að útlit sé fyrir skaplegasta veður á landinu um og eftir hádegi. Vindur verði ekki nema suðvestan fimm til þrettán metrar á sekúndu seinni partinn, þurrt um allt land og hiti um eða undir frostmarki.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að þetta tíðindaleysi muni þó ekki endast lengi því strax í kvöld hvessi syðst á landinu með slyddu eða snjókomu og hlýni hægt og rólega. „Á morgun stefnir í allhvassa suðlæga átt með rigningu víða, en slyddu eða snjókomu norðaustantil í fyrstu. Annað kvöld bætir síðan frekar í vind á norðanverðu landinu og mögulegt að vindurinn fari í stormstyrk. Á laugardag spáir sunnan hvassviðri eða stormi með talsverðri rigningu, en úrkomuminna norðaustanlands. Það snýst síðan í hvassa suðvestanátt með éljum þegar líður á daginn. Það er því vert að fylgjast með spám fyrir laugardaginn ef fólk ætlar að vera á faraldsfæti,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Sunnan og suðvestan 10-18 m/s, hvassast vestantil á landinu. Víða rigning, en slydda eða snjókoma fram eftir morgni á Norður- og Austurlandi. Hlýnandi, hiti 1 til 6 stig síðdegis. Bætir í vind norðantil um kvöldið. Á laugardag: Sunnan 15-23 m/s og talsverð rigning, en úrkomuminna norðaustanlands. Hiti 4 til 9 stig. Snýst í hvassa vestlæga átt með éljum og kólnandi veðri seinni partinn. Á sunnudag: Fremur hæg suðlæg átt og él vestanlands, annars þurrt. Hiti kringum frostmark. Vaxandi suðaustanátt með slyddu eða rigningu sunnantil um kvöldið og hlýnar. Á mánudag: Stíf sunnanátt með rigningu og hlýindum, en úrkomulítið norðaustantil á landinu. Á þriðjudag: Snýst í suðvestanátt með skúrum og síðar éljum sunnan- og vestanlands, en þurrt um landið norðaustanvert. Kólnandi. Á miðvikudag: Útlit fyrir suðvestanátt og él, en þurrt norðaustantil. Hiti um frostmark.
Veður Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Sjá meira