Vestlæg átt og sums staðar stormur Atli Ísleifsson skrifar 27. janúar 2023 07:11 Spákort fyrir klukkan 14. Veðurstofan Veðurstofan gerir ráð fyrir vestlægri átt í dag, hvassviðri og sums staðar stormi. Reikna má með slydduéljum eða éljum en dregur svo úr ofankomu þegar líður á daginn.
Á vef Veðurstofunnar segir að lengst af verði þurrt fyrir austan. Dregur smám saman úr vindi og í kvöld orðið nokkuð skaplegt víðast hvar. Vægt frost en yfirleitt frostlaust við ströndina. Gular viðvaranir eru í gildi vegna hvassviðris eða storms fram á miðjan dag en fram á kvöld norðaustantil. „Á morgun er síðan von á enn einni lægðinni sem keyrir yfir landið. Í byrjun má gera ráð fyrir slyddu eða snjókomu sem síðan færist yfir í rigningu og ágætum hita. Um kvöldið verður vindur suðvestlægur með skúrum eða slydduéljum og kólnar aftur,“ segir á vef Veðurstofunnar. Gular viðvaranir eru í gildi víða um land.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Suðlæg átt 8-15 m/s og slydda eða snjókoma, en fer að rigna sunnan- og vestanlands með morgninum. Hlýnandi, hiti 1 til 7 stig eftir hádegi. Suðvestlægari síðdegis með skúrum um landið sunnan- og vestanvert. Á sunnudag: Norðlæg eða breytileg átt 5-13 og él, en úrkomulítið sunnanlands eftir hádegi. Frost 0 til 6 stig. Á mánudag: Fremur hæg breytileg átt og þurrt að kalla, en hvassari austanátt síðdegis með snjókomu á köflum sunnantil. Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum fyrir norðan. Á þriðjudag: Norðaustlæg átt og él, en lengst af úrkomulítið suðvestantil. Frost 2 til 12 stig, mildast syðst. Á miðvikudag: Breytileg átt og él á víð og dreif. Heldur kólnandi. Á fimmtudag: Útlit fyrir vaxandi suðlæga átt með vætu og hlýnandi veðri í bili.
Veður Mest lesið Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Innlent Fleiri fréttir Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Smávegis væta norðantil en bjart sunnantil Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Víða bjartviðri en líkur á þokulofti vestantil Milt veður ríkjandi og hiti að átján stigum Hið rólegasta veður og hiti að fjórtán stigum Veðrið stjórnast af lægð á Grænlandshafi Hitinn nær upp í tíu stig Rólegheitaveður og smá skúrir Víða skúrir en hiti gæti skriðið yfir tólf stig Norðaustan strekkingur og rigning Hæg austlæg átt en skilabakki nálgast Smálægðir á sveimi og hvessir á morgun Hviður þvert á Vesturlandsveg á Kjalarnesi Oftar en ekki viðvörun í gildi í mars Má búast við mikilli úrkomu á Austfjörðum Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Minnkandi vindur og stöku él Víða skúrir og hvessir eftir hádegi Allhvass vindur og rigning Önnur lægð nálgast landið Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Vaktin: Austanbylur annan í páskum Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Logn í dag á undan storminum á morgun Mæla með að fólk leggi fyrr af stað Gul viðvörun vegna austan stórhríðar annan í páskum Þungfært víða um land Kalt í veðri miðað við árstíma Sjá meira