Lægðardrag velur talsverðri slyddu eða rigningu Atli Ísleifsson skrifar 2. janúar 2023 06:45 Það hlýnar hjá okkur frá því sem verið hefur undanfarið og heilt yfir verður hiti nálægt frostmark á landinu í dag. Vísir/Vilhelm Útlit er fyrir sunnanátt í dag þar sem víða verður á vindur átta til fimmtán metrar á sekúndu og él. Þó má reikna með að það verði þurrt norðaustanlands.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að síðdegis komi lítið lægðardrag inn á land úr suðri sem mun valda talsverðri slyddu eða rigningu á láglendi á Suðausturlandi og einnig á Austfjörðum í kvöld. Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun á Austfjörðum vegna allhvass vinds með snjókomu frá klukkan 20 í kvöld og til klukkan eitt í nótt. Má þar búast við vindhraða á bilinu þrettán til átján metrar á sekúndu með talsverðri snjókomu og skafrenningi til fjalla. Þá má reikna með lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum. „Það hlýnar hjá okkur frá því sem verið hefur undanfarið og heilt yfir verður hiti nálægt frostmark á landinu í dag. Mun rólegri suðvestanátt á morgun víðast hvar, skýjað með köflum, stöku él og frystir aftur. Annað veður í vændum austanlands, þar hangir úrkomubakki yfir og úr honum ýmist rignir eða snjóar. Auk þess má búast við allhvassri suðaustanátt á því svæði framan af degi,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Suðvestan 3-10 m/s, skýjað með köflum og stöku él. Frost 2 til 7 stig. Rigning eða snjókoma austanlands og hiti um og yfir frostmarki, auk þess allhvöss suðaustanátt þar framan af degi. Á miðvikudag: Norðlæg átt 3-10. Snjókoma á austurhelmingi landsins, en rigning með austurströndinni. Bjartviðri um landið vestanvert. Frost 2 til 10 stig, en frostlaust austast. Á fimmtudag: Fremur hæg breytileg átt, þurrt að mestu á landinu og bjart á köflum. Frost 3 til 13 stig. Á föstudag: Gengur í austan 10-15, en 15-20 með suðurströndinni. Dálítil él á austanverðu landinu, en þurrt vestantil. Dregur úr frosti. Á laugardag og sunnudag: Norðaustanátt með éljum, en bjartviðri sunnan heiða. Frost 0 til 5 stig.
Veður Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Sjá meira