Íslensk lög:
Lúpína - Ástarbréf
„Fullkomið lag frá nýliða ársins. Frumlegt og leitar á ný mið. Listamaður sem er að skapa eitthvað nýtt.“
Lil Binni - Sígó og Sexýmax
„Fullkomlega áreynslulaus snilld. Lil Binni miðlar sínu á einstakan hátt.
Það þarf utanrammariddara í þennan ofverndaða heim, þar sem allt er svart eða hvítt og öruggt og rétt.“
Sá sem ég er - Sturla Atlas & Ízleifur
„Einstakt lag sem snerti við mér. Meðvitund um sjálfið og formið og tímaleysi andans.“
Daniil ft. Joey Christ - Ef Þeir Vilja Beef
„Án alls vafa rapplag ársins, breið skírskotun, sannleikur og mikil þróun hjá Daniil. Hér er fólk að hreyfa hluti áfram.“
Una Torfa - Fyrrverandi
„Bara einstaklega gott popplag og sterk nálgun á klassískt form. Gott hjá Unu að prófa eitthvað nýtt og gera það vel.“
Næst inn: Unnsteinn - Andandi
Erlend lög:
Lil Uzi Vert - Just Wanna Rock
„Rödd kynslóðar, kemur með eitthvað ferskt ár eftir ár.“
Drake, 21 Savage - Major Distribution
„Með betri lögum af Her Loss, sem er mögulega plata ársins.“
Burna Boy - Last Last
„Þetta er algjörlega eitt af betri lögum ársins. Heyrði fyrst í Burna Boy á götum Síerra Leóne og hann rís alltaf hærra.“
Beyonce - Cuff it
„Fannst platan gera suma hluti rétt, aðra illa. En þetta lag var með allar tölur réttar.“
Rosalía - DESPESCHÁ
„Hún er bara svo ótrúlega öflug og þetta er svo sturlað grípandi lag. Virkar á klúbbnum í Bogota og á klúbbnum í nyrstu höfuðborg heims.“
Næst inn: Björk - Ancestress