„Smá heilahristingur en ekkert alvarlegt“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. desember 2022 13:56 Þorsteinn Leó Gunnarsson hefur verið einn besti leikmaður Olís-deildarinnar í vetur. vísir/hulda margrét Þorsteinn Leó Gunnarsson, leikmaður Aftureldingar, fór meiddur af velli í upphafi leiksins gegn Stjörnunni í Garðabænum í gær vegna höfuðmeiðsla. Hann segir þau þó ekki alvarleg.
Strax á 3. mínútu leiksins lenti Þorsteinn illa eftir að hafa lyft sér upp og skotið að marki Stjörnunnar. Hann kom ekkert meira við sögu í leiknum sem Mosfellingar unnu, 26-29. Hann bar sig þó ágætlega þegar blaðamaður Vísis tók púlsinn á honum í dag. „Þetta var bara smá heilahristingur en ekkert alvarlegt. Ég verð fljótur að ná mér. Þetta er ekkert stórmál,“ sagði Þorsteinn. Hann veit þó ekki hvenær hann getur snúið aftur á völlinn. Afturelding á tvo leiki eftir fram að jólum; gegn Val í Olís-deildinni á föstudaginn og HK í Coca Cola bikarnum fimmtudaginn 15. desember. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Þorsteinn fær höfuðhögg á tímabilinu. „Ég fékk nokkuð stórt högg fyrir rúmum tveimur mánuðum síðan en þetta er ekki nærri því jafn slæmt.“ Afturelding, sem hefur unnið átta af síðustu tíu leikjum sínum í deild og bikar, er í 3. sæti Olís-deildarinnar með sextán stig eftir tólf leiki. Þorsteinn er næstmarkahæsti leikmaður Aftureldingar í Olís-deildinni með 58 mörk í tíu leikjum.
Olís-deild karla Afturelding Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Íslenski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira
Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Íslenski boltinn
Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Íslenski boltinn