Juventus upp í þriðja sæti eftir fimmta sigurinn í röð Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 10. nóvember 2022 19:30 Moise Kean skoraði eina mark leiksins í kvöld. Pier Marco Tacca/Getty Images Ítalska stórliðið Juventus er að snúa gengi sínu við eftir erfiða byrjun á tímabilinu. Liðið vann nauman 0-1 útisigur gegn botnliði Hellas Verona í kvöld, en þetta var fimmti deildarsigur liðsins í röð.
Ekkert var skorað í fyrri hálfleik og staðan var því 0-0 þegar liðin gengu til búningsherbergja. Moise Kean kom gestunum í Juventus þó yfir á 60. mínútu leiksins eftir stoðsendingu frá Adrien Rabiot og liðið gat andað léttar. Heimamenn sóttu þó stíft það sem eftir lifði leiks og vildu meðal annars fá tvær vítaspyrnur. Í bæði skiptin kom VAR gestunum þó til bjargar og staðan var því enn 0-1 þegar venjulegum leiktíma lauk. Heimamenn voru svo við það að sleppa í gegn á annarri mínútu uppbótartíma, en Alex Sandro kom í veg fyrir það með því að brjóta af sér rétt fyrir utan vítateig og fékk að líta beint rautt spjald að launum. Ekki tókst heimamönnum að nýta sér liðsmuninn þessar seinustu mínútur leiksins og niðurstaðan því 0-1 sigur Juventus. Eins og áður segir var þetta fimmti deildarsigur liðsins í röð og Juventus situr nú í þriðja sæti deildarinnar með 28 stig eftir 14 leiki, en fyrir leikinn sat liðið í sjöunda sæti.
Ítalski boltinn Mest lesið Mick Schumacher gaf sjaldgæfa innsýn inn í líf föður síns Formúla 1 Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti Miklu fleiri bakteríur í ræktinni en á klósettsetunni Sport United menn á allt öðrum og betri stað eftir inngrip Van Nistelrooy Enski boltinn Jafntefli sem gerir lítið fyrir bæði lið Enski boltinn Liverpool hefur áhyggjur af meiðslunum hjá Trent Enski boltinn Uppgjörið: Ísland - Rúmenía 77-73 | Fyrsti sigur íslenska liðsins í tvö ár Körfubolti Nýliðarnir sóttu þrjú stig til Tottenham og Newcastle skellti Forest Enski boltinn Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Íslenski boltinn Á bara eftir að skora á Anfield og heimavelli Brentford Enski boltinn Fleiri fréttir Nistelrooy þakklátur en veit ekki hvað tekur nú við Í beinni: Sociedad - Barcelona | Orri Steinn á bekknum er toppliðið kemur í heimsókn Ingibjörg á skotskónum og Cecilía Rán varði víti og hélt hreinu Jafntefli sem gerir lítið fyrir bæði lið Nýliðarnir sóttu þrjú stig til Tottenham og Newcastle skellti Forest United menn á allt öðrum og betri stað eftir inngrip Van Nistelrooy Sævar Atli skoraði og fiskaði mikilvægt víti fyrir Lyngby „Velkomin í dal draumanna“ Gleymdi að kjósa Vinicius Junior Barnið þriggja vikna þegar mamman kom inn á og varð sænskur meistari Liverpool hefur áhyggjur af meiðslunum hjá Trent Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Messi og félagar óvænt úr leik í fyrstu umferð en Dagur Dan fór áfram Á bara eftir að skora á Anfield og heimavelli Brentford Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns „Því miður gefur sigur á Man City aðeins þrjú stig“ Juventus vann grannaslaginn „Kemur alltaf að því að eitthvað gerist í fyrsta skipti á ævinni“ Tvær breytingar á landsliðshópnum Gestirnir réðu ekki við hraðann í strákunum hans Slot Milan missteig eftir sigurinn frækna á Real Willum Þór lagði upp þegar Birmingham tapaði óvænt stigum Brighton sá til þess að Man City tapaði fjórða leiknum í röð Hermann Hreiðars tekur við HK Bayern jók forystuna á toppnum á meðan Dortmund og Leverkusen töpuðu stigum Liðsfélaginn náði þriggja marka forskoti á Emilíu Kiær Birkir Bjarna kom aftur inn á og skoraði Vinicius Junior með þrennu í stórsigri Real Madrid Sigdís Eva opnaði markareikninginn og Hlín skoraði tvö Varsjáin tók mark af Jóni Degi Sjá meira
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti