Lægð færir okkur stífa norðaustanátt með vætu víða Atli Ísleifsson skrifar 8. nóvember 2022 07:15 Gul viðvörun er í gildi á suðaustanverðu landinu í dag. Vísir/Vilhelm Suður af landinu liggur nú víðáttumikil 964 millibara lægð og færir hún okkur stífa norðaustanátt í dag með vætu víða. Þó verður þurrt um landið suðvestanvert og líklega bjart á köflum.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að vindurinn nái stormstyrk á suðaustanverðu landinu og er gul viðvörun í gildi þar fram á kvöld. Hvassast verður í Öræfum þar sem búast má við mjög snörpum vindhviðum við fjöll, staðbundið yfir 35 metra á sekúndu, sem geta verið hættulegar fyrir vegfarendur með aftanívagna eða á ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Veðurstofan gerir ráð fyrir að hiti á landinu verður á bilinu núll til átta stig, hlýjast syðst. „Á morgun bætir í vindinn norðvestantil og verður allhvass eða hvass vindur þar næstu daga með slyddu. Hægari annars staðar og víða væta. Hiti að mestu 2 til 7 stig að deginum.“ Spákort fyrir klukkan 16 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Norðaustlæg átt 3-10 m/s, en 10-15 norðvestantil. Rigning eða slydda með köflum fyrir norðan, einkum í fyrstu, en dálítil væta sunnantil. Vaxandi austanátt sunnanlands um kvöldið. Hiti 1 til 7 stig. Á fimmtudag: Norðaustan hvassviðri á Vestfjörðum, en hægari vindur annars staðar. Rigning eða slydda um landið norðanvert, en úrkomuminna syðra. Hiti 2 til 7 stig. Á föstudag: Norðaustan 8-15 m/s á Vestfjörðum með slyddu eða snjókomu og hiti um frostmark, en suðlæg eða breytileg átt annars staðar og rigning eða slydda með köflum. Hiti 2 til 7 stig. Á laugardag: Gengur í stífa suðaustanátt með dálítilli rigningu, en úrkomulítið á Norðurlandi. Hiti 3 til 8 stig þegar líður á daginn. Á sunnudag: Áframhaldandi stíf suðaustlæg átt með rigningu víða. Hlýnar heldur. Á mánudag: Útlit fyrir minnkandi suðlæga átt og væta um landið sunnanvert, annars þurrt. Kólnar lítillega.
Veður Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Sjá meira