Rafjepplingurinn EQE SUV heimsfrumsýndur Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 21. október 2022 07:00 Mercedes EQE Mercedes-Benz hefur heimsfrumsýnt nýjan og glæsilegan EQE SUV jeppling. Um er að ræða 100% rafmagnaðan jeppling hlaðinn búnaði og með þónokkuð afl.
Þetta er fyrsti 100% rafmagnaði AMG jepplingurinn frá Mercedes-EQ og Mercedes-AMG. EQE SUV er með allt að 590 kílómetra drægi og rafmótorinn skilar bílnum allt að 687 hestöflum í AMG útfærslunni. EQE SUV er með öflugt fjórhjóladrif og ríkulegan staðalútbúnað. Innanrými EQE SUV er eitt það besta sem finnst í bíl í þessum stærðarflokki og inniheldur nýstárlegan þægindabúnað sem gerir aksturupplifunina mjög góða. Í innanrýminu, sem er hlaðið þægindum og lúxus, er MBUX hágæða margmiðlunarkerfi og fyrsta flokks hljómgæði með Burmester 3D hljóðkerfi. EQE SUV er stór og stæðilegur jepplingur og það er mikið pláss fyrir fólk og farangur. Farangursrými bílsins er alls 1686 lítrar. Hér má sjá bílinn á myndbandi af YouTube rásinni AutoRAI International. Nýr EQE SUV er enn einn áfangi Mercedes-Benz í rafbílavæðingu framleiðandans, en Mercedes-Benz hefur gefið út að árið 2030 muni allur bílafloti vörumerkisins vera framleiddur kolefnishlutlaus og samanstanda einungis af rafmagnsbílum. EQE SUV er í senn bæði sportlegur og fágaður og er fjölhæfasti rafmagnsbíll í vöruframboði Mercedes-EQ. Hann er byggður á sameiginlegum EVA 2.0 undirvagni sem einnig má finna í EQS og EQE fólksbílunum. Séð aftan á EQE. EQE SUV mun einnig koma í AMG útgáfu. Tveir öflugir rafmótorar og fjölhæft fjórhjóladrif er grundvöllur framúrskarandi akstursupplifunar bílsins sem fylgir jafnan AMG útgáfu. Sérfræðingar í þróunardeild Mercedes-AMG hafa sett sitt eigið mark á fjölda þátta í bílnum. Þar má meðal annars nefna hönnun bílsins bæði að innan og að utan, fjöðrunarkerfi með stýringu á afturás sem er staðalbúnaður og öflugt AMG SOUND EXPERIENCE hljómkerfið sem gerir aksturinn að upplifun fyrir öll skilningarvitin. Forsala á nýjum EQE SUV mun hefjast snemma á nýju ári og er áætlaður til landsins um mitt ár 2023.
Bílar Vistvænir bílar Mest lesið Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Innlent Lalli Johns er látinn Innlent Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Erlent Hlýnandi veður og gæti farið í tuttugu stig á morgun Veður Láta bandarískan gísl lausan Erlent Kölluð út vegna viðskiptavinar með æsing Innlent Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Innlent Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent „Þjóðin á ekki fiskinn í sjónum, fiskurinn á sig sjálfur í sjónum“ Innlent