Lokahóf aldanna
Verkin á sýningunni má segja að séu einskonar lokahóf eða hápunktur þessa tímabils sem Árni Már hefur dvalið í. Má því segja að sýningin sé kveðja við ákveðið tímabil, öldurót. Til sýnis verða málverk, prentverk og lágmynd og innblásturinn má sækja í sjóinn.
Verk hans tengd sjónum og öldum hafa verið vinsæl síðustu fjögur til fimm ár. Sökum einfaldleika þeirra finnst Árna að hann þurfi að segja skilið við þetta tímabil, halda áfram að skoða og líta eftir einhverju öðru.
40-50 verk sem þekja veggina
„Ég er mjög spenntur fyrir framhaldinu en eins og á þessari sýningu líka þar sem það verður allt yfirfullt af verkum. Ég er búinn að vinna á bilinu 40-50 verk sem ég er að sýna í meðalstórum sal svo það verður allt veggfóðrað. Úr því að ég ætla að segja skilið við þetta þá langar mig að gera það almennilega,“ segir Árni og bætir við:
„Eins er ég að vinna með nýja efnisnotkun í einhverjum verkanna og verður það eitthvað sem ég mun halda áfram að þróa.“
Þó að um tímamót sé að ræða kveður Árni öldurnar ekki alveg strax.
„Þessu er ekki alveg lokið því ég þarf að vinna af mér einhverja biðlista en síðan mun ég halda áfram að þróa þetta svo það má segja að næsta skref sé frekar áframhaldandi þróun á þessum verkum og verða þau ekki gerð í þessari mynd sem ég hef verið að vinna að síðustu ár.
Það eru spennandi tímar framundan, breytingar eru alltaf til góðs og hlakka ég til að sjá hvað er framundan.“
Listamaður margra miðla
Kristína Aðalsteinsdóttir skrifaði texta í tengslum við sýninguna en hér má finna brot úr honum:
„Málverk Árna Más bera með sér óræða hreyfingu og einkennast af afmörkuðum litastrendingum sem blandast við samfléttaðar formgerðir, sem eiga tilurð sína í spunatengdum innsæisteikningum.
Verk hans byggja oft á persónulegum reynsluheimi, og endurspegla hæglát augnablik í náttúru og þróun innri vegferðar.
Uppruna verka hans má rekja til graff-menningar tíunda áratugarins og hip-hop tónlistar, þar sem hann færðist frá einum stað til annars og meitlaði tjáningu sína í borgarlandslagið. Ekki ósvipað hip-hop tónlistinni sem veitti honum innblástur, (sem blandaði saman eiginleikum blús, jazz og fönktónlistar), þá bar val hans á upprunamiðli merki hreyfanleika og aukinnar valdeflingar.
Líkt og örvar teljast megintákn graffmenningar, oft í bland við texta, þá teljast stefnubendingar sem eitt af grunnhöfundareinkennum Árna Más allt frá byrjun og til dagsins í dag. Líkamleg framkvæmd verkanna er oftar en ekki bersýnileg, en hann er listamaður margra miðla.“

Sýningin stendur til 6. nóvember.