Ása Björg var markaðsstjóri Bestseller og sat í framkvæmdastjórn fyrirtækisins. Samhliða störfum sínum hjá Bestseller gengdi hún einnig starfi markaðsstjóra Nespresso þegar fyrirtækið hóf starfsemi hér á landi árið 2017.
Kavita er í eigu Katrínar Amni Friðriksdóttur, framkvæmdastjóra Kavita, og Ágústs Sindra Karlsonar. Ása Björg og Katrín Amni störfuðu saman í teyminu sem opnaði verslanir Nespresso hérlendis.
Ása hefur hingað til verið á kafi í náttúruhlaupum og ég er mjög glöð af fá hana með mér í náttúrulegu bætiefnin líka.
„Ég er ótrúlega spennt að fá að taka þátt í þessari vegferð hjá Kavita,“ segir Ása Björg. „Ég hef sjálf mikinn áhuga á náttúrulegum bætiefnum og hef fylgst með vexti ICEHERBS undanfarin ár enda áhugavert að sjá íslenskt fyrirtæki vaxa í slíkri framleiðslu. Ég kann vel við mig í skapandi umhverfi. Hér fer fram stöðug þróun á bætiefnum til að koma til móts við fjölbreyttar þarfir á markaði. Öll hönnun á umbúðum og auglýsingaefni fer fram hér innanhús. Hér er einstaklega skapandi teymi og ég hlakka til að taka þátt í uppbyggingu á þessum vörumerkjum enda brenn ég fyrir heilbrigði vörumerkja og finnst gaman að sinna þeim í daglegum rekstri.“
Ása, sem er viðskiptafræðingur frá Háskóla Reykjavíkur, hefur starfað sem markaðsráðgjafi hjá auglýsingastofunni Hvíta húsinu en hóf ferilinn í markaðsdeild Heklu þar sem hún vann fyrir Volkswagen, Audi og Benz.
„Ása hefur hingað til verið á kafi í náttúruhlaupum og ég er mjög glöð af fá hana með mér í náttúrulegu bætiefnin líka,“ segir Katrín Amni.
Ása Björg var fararstjóri í hlaupaferð í kringum Mont blanc í sumar á vegum Fjallafélagsins og stefnir á að gera það aftur.