Stormur austantil en lægir smám saman Atli Ísleifsson skrifar 10. október 2022 06:39 Hiti á landinu verður í kringum frostmark víðast hvar, en kólnar í kvöld, einkum í innsveitum. Vísir/RAX Reikna má með norðvestan hvassviðri eða stormi um landið austanvert í dag og éljum norðaustantil. Veðurstofuan spáir þó að það muni stytta upp í dag og lægja smám saman.
Appelsínugular viðvaranir eru enn í gildi á austanverðu landinu, þær síðustu til klukkan níu fyrir hádegi. Á vef Veðurstofunnar segir að það verði norðan fimm til tíu metrar á sekúndu og bjartviðri vestanlands í dag. Hiti verður í kringum frostmark víðast hvar, en kólnar í kvöld, einkum í innsveitum. „Vaxandi suðaustanátt á Suður- og Vesturlandi í nótt, 10-18 m/s og rigning á morgun. Hægari vindur og þurrt norðaustanlands, en þar fer að rigna seinnipartinn og þá í vestan kalda sunnan- og vestantil. Hlýnandi, hiti 4 til 10 stig seint á morgun,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Suðaustan 10-18 m/s og rigning, en hægari og þurrt um landið norðaustanvert fram eftir degi. Lægir vestantil seinnipartinn. Hlýnandi veður, hiti 4 til 10 stig um kvöldið. Á miðvikudag: Suðvestan 8-13 og skúrir Suðvestan- og vestanlands, en bjartviðri eystra. Hiti 1 til 8 stig. Á fimmtudag: Austlæg eða breytileg átt, skýjað með köflum og úrkomulítið. Heldur kólnandi. Á föstudag og laugardag: Norðanátt og él, en þurrt sunnanlands. Hiti kringum frostmark. Á sunnudag: Útlit fyrir norðanátt með snjókomu eða slyddu norðan- og austantil á landinu.
Veður Mest lesið Bjarni gefur ekki kost á sér og afsalar sér þingsæti Innlent Bandaríkin ein ástæða þess að Íslendingar eru eftirbátar Norðurlandanna Innlent Peningadeilur Fjólu og Eddu á dagskrá dómstóla Innlent Tugir svekktra barna þurftu að snúa við á Kjalarnesi Innlent Sætta sig ekki við neitt annað en að húsið verði rifið Innlent Sagður hafa þegið töskur fullar fjár frá Gaddafi Erlent Vildi aðstoð lögreglu við að fá vinninginn afhentan Innlent Bjarni farsæll en hefur alltaf átt sér óvildarmenn Innlent Hver tekur við af Bjarna? Þetta eru nöfnin sem oftast eru nefnd Innlent Þrír ráðuneytisstjórar fluttir til í starfi Innlent Fleiri fréttir Norðanáttin getur náð stormstyrk Vindstrengir ná mögulega stormstyrk í kvöld Slydda eða snjókoma sunnan- og vestantil Dálítil él og frost að tíu stigum Kalt og rólegt veður á fyrsta degi ársins Talsvert frost en rólegt veður þegar nýtt ár gengur í garð Segir umferðarmenninguna oft erfiða á Hellisheiðinni Snjómokstur hófst klukkan fjögur í nótt „Það versta stendur yfir áramótin“ Útlit fyrir snjókomu vestast Smálægðir keppast við að stýra veðrinu í dag Spáir stillu og miklu svifryki um áramótin Stíf suðvestanátt áfram ríkjandi Dregur úr vindi en áfram vetrarveður Appelsínugular viðvaranir og vegir víða lokaðir Appelsínugular viðvaranir og heiðar lokaðar Lokað um Þrengsli og vegir víða á óvissustigi Ákveðin suðaustanátt og víða snjókoma Stíf norðanátt og frost í flestum landshlutum Köldu éljalofti beint til landsins Víða kaldi og él Lægð beinir vestlægri átt til landsins Hlýnar með skúrum og slydduéljum Stormur á Austfjörðum Allhvass vindur með skúrum eða éljum Útlit fyrir allhvassan vind með rigningu Vindur á niðurleið en næsta lægð nálgast úr suðvestri Góðar líkur á rauðum jólum í Reykjavík Dregur úr vindi og úrkomu með morgninum Köld norðanátt og víða él Sjá meira