Gæsaveiðin gengur vel í rokinu Karl Lúðvíksson skrifar 4. október 2022 08:43 Grágæsir mega nú vara sig því veiðimenn hafa vopnbúist og svo er setið fyrir heiðagæsum við vötn, polla og lækjarbakka til heiða. mynd/Arnór Þórir Sigfússon Það eru ekki allir sem kvarta yfir því að fá smá rok og rigningu en þetta er einmitt veður sem gæsaskyttur segja eitt það besta fyrir skotveiði.
Þegar það er logn og bjart er gæsin mjög vör um sig og kemur oft hátt að ökrunum þar sem setið er fyrir þeim. Hún getur tekið nokkra hringi yfir gervigæsirnar og þá má engin skytta hreyfa sig því þá er fuglinn farinn. Þetta getur verið mjög hvimleitt sérstaklega þegar það er mikið af fugli sem sveimar gargandi yfir akrinum utan skotfæris. Það er þess vegna mikið betra þegar það er smá blástur, má jafnvel vera rok, en þá kemur gæsin oftar en ekki lægra inn upp í vindinn og það er mun minna hik á henni þegar hún fer í gerfigæsirnar. Gæsaskyttur sem vi ðhöfum heyrt frá síðustu daga eru í það minnsta mjög sáttir með að fá gott (vont) veður þessa dagana þegar gæsin er að hópast niður á láglendi í tún og akra í þúsundatali. Margir hafa verið að gera feykna góða veiði en nokkrir hópar sem við höfum heyrt af hafa verið að fá hátt í hundrað gæsir í einu morgunflugi.
Skotveiði Mest lesið Laxveiðileyfi undir 20 þúsund krónum Veiði Góð rjúpnaveiði um allt land í gær Veiði Tók fyrsta laxinn sinn í Elliðaánum Veiði Zeldan er einföld en gjöful fluga Veiði Mús í Urriðamaga Veiði 100 sentímetra lax í Selá; Góð opnun í Hofsá Veiði Núna er tíminn til að fara á kastnámskeið Veiði Þegar stóru hængarnir fara á stjá Veiði Aukin veiði fjölgar refum Veiði Ekki rætt um annað útboð Veiði