„Sumt er á yfirborðinu, annað lendir undir“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 19. ágúst 2022 17:01 Sandra H. Andersen stendur fyrir sýningu á morgun, Menningarnótt. Aðsend Listakonan Sandra H. Andersen sækir innblástur í áhugaverðar konur í listsköpun sinni en hún hefur verið búsett í Bandaríkjunum síðastliðin átta ár, fyrst í Los Angeles og svo í New York þar sem hún býr í dag. Sandra stendur fyrir sýningunni Lag eftir lag sem er einungis opin á morgun, Menningarnótt, en blaðamaður heyrði í henni og fékk að skyggnast inn í hennar listræna hugarheim.
Sköpunarútrás „Ég byrjaði að vinna þessi tilteknu verk í upphafi síðasta árs. Þá fékk ég tækifæri til að vinna úti og hóf því rekstur Studio Andersen,“ segir Sandra og bætir við: „Verkin eru gerð úr pappír og raða ég honum saman og bý til skugga, línur og áferð. Ég hef aðallega verið í námi og hef verið að læra ritlist en ég hef alltaf fengið mikla útrás í sköpun.“ Verk Söndru einkennast af lögum.Aðsend Ferlið við sýninguna hefur gengið vel að hennar sögn. „Þegar það kom að þessum verkum þá gat ég í rauninni setið tímunum saman að reyna að rífa hina fullkomnu beinu línu. Ég var alltaf með blöðrur á fingrunum, þegar allt rif, skuggar, öll lög, fór að þýða miklu meira. Þetta myndaði eina fullkomlega ófullkomna heild. Ég byrjaði að sjá fegurðina í þessu ófullkomna. Allt þetta hefur tilgang í myndunum.“ Í dagskrá Menningarnætur segir: „Sandra H. Andersen skapar sína upplifun á lífinu með skúlptúrum úr pappír, sem fer lag eftir lag, rétt eins og manneskjan sjálf. Þar sem ekkert er fullkomið og það óvenjulega er fallegt.“ Verk eftir Söndru.Aðsend Lög manneskjunnar „Öll þessi lög sem koma fram er svolítið eins og við sem manneskjur. Við höfum öll þessi lög af tilfinningum, hugsunum, upplifunum, og fleiru. Þetta gerir okkur okkur. Hvert lag hefur sinn tilgang. Sumt er á yfirborðinu, annað lendir undir. Við byggjumst upp lag fyrir lag. Mótun hvers og eins, með skuggum og skekkjum, tilfinningar sem finna sig ekki, reynsla sem raðast. Ekkert lag er eins. Hvert lag er mismunandi upplifun, tilfinning og hugsun, sem saman myndar heild,“ segir Sandra að lokum. Verk Söndru verða til sýnis á Menningarnótt í nýjum sýningarsal Sigurðar Sævars á Barónsstíg, þar sem Argentína steikhús var áður til húsa. Nánari upplýsingar má finna hér.
Myndlist Menning Menningarnótt Tengdar fréttir Heitasta listapar landsins býður í heimsókn Listræna kærustuparið Saga Sigurðardóttir og Vilhelm Anton Jónsson ætla að veita gestum og gangandi innsýn í skapandi hugarheima sína á Menningarnótt með opinni vinnustofu. Blaðamaður heyrði í Sögu og fékk að heyra nánar frá þessum viðburði. 19. ágúst 2022 08:01 „Minnir mann á hvað þetta snýst allt um“ Fjöldin allur af fjölbreyttu fólki í ólíku formi kemur saman á laugardaginn og hleypur til styrktar mikilvægra málefna í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka. Lífið á Vísi tók púlsinn á nokkrum hlaupurum sem eru þekktir einstaklingar í samfélaginu. Þau fara ólíkar vegalengdir fyrir ólíkan málstað en eru sammála um samheldnina, fegurðina og gleðina sem einkennir þessa morgunstund á Menningarnótt. 18. ágúst 2022 15:30 Þétt dagskrá á langþráðri Menningarnótt í Reykjavík Menningarnótt verður loksins haldin á ný þann 20. ágúst næstkomandi. Blaðamannafundur fór fram í dag þar sem dagskráin var kynnt ásamt ýmsum skemmtiatriðum. Vísir sýndi frá fundinum í beinni útsendingu. 16. ágúst 2022 13:10 Allt sem þú þarft að vita um veisluna á Menningarnótt Menningarnótt Reykjavíkurborgar verður haldin hátíðleg á morgun, þann 20. ágúst eftir langa bið og er dagskráin troðfull að vanda. Vísir setti saman stutt yfirlit með helstu upplýsingum og skemmtilegum viðburðum fyrir þau sem ætla að gera sér ferð í bæinn á þessum hátíðisdegi. 19. ágúst 2022 09:30 Mest lesið Er þetta hinn nýi hvíti karlmaður? Lífið Fór í hjartastopp eftir að hafa borðað 10.000 hitaeiningar á dag Lífið Leikur plötusnúð á Hollywood sem eltir æskuástina til Spánar Lífið Þrýstingur Trump dugði til að fá Rush Hour 4 í gegn Bíó og sjónvarp Enn reið Tarantino vegna þess sem hann gerði íslenskum konum Lífið „Ma & pa í apríl“ Lífið Kjallarinn eins og nýr hjá Ásu og Árna Lífið Bryndís Líf og Stefán eiga von á dreng Lífið 50+: Það má segja Nei við barnapössun Lífið Inga Elín hannar fyrir Saga Class Lífið Fleiri fréttir Skilaði Kommúnistaávarpinu hálfri öld of seint en sleppur við sekt „Mér líður eins og plottið í bókinni sé að raungerast“ Helgi snýr heim: „Laus við leiðindin sem bjuggu þetta til“ Jón Ásgeirsson tónskáld er látinn Fimm fáránlegar biðraðir Íslendinga Þrír metnir hæfir til að stýra Óperunni Frumsýning á Vísi: Skoppa og Skrítla bjóða krökkunum í jólapartý Lögðu til að Gunnar og Halldór deildu Nóbelsverðlaununum Bubba svarað og „barnaleg vitleysa“ í Borgó George R. R. Martin á Íslandi: „Það er smá svalt hérna“ Skálað fyrir glæsilegustu dönsurum landsins og Jónsa úr Sigur Rós Krafa um betri ensku en íslensku reyndust mistök Magnús nýr formaður stjórnar Leikfélags Reykjavíkur „Erfiðasti skóli sem ég hef farið í“ Floppin í haust og sjónvarpslaus sjónvarpsverðlaun Fyrrverandi ráðherra Dana: „Þið voruð aldrei nýlenda“ Samkeppnin í New York minnti á X-Factor keppni Hrekkjavökubúningar sem er best að forðast Magnús Karel og Inga Lára hlutu menningarviðurkenningu Árborgar Cecilie tekur við af Auði Þórdís Dröfn hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar Katrín og Ragnar snúa aftur með nýja bók Fullkominn vettvangur til að verja vetrarfríinu Hver er uppáhaldsbókin þín eftir Halldór Laxness? Ný gjaldfrjáls íslensk-ensk veforðabók opnuð Ryan Eyford handhafi Vigdísarverðlaunanna 2025 Víkingur Heiðar hlýtur tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs Lína orðin að „peningasjúkum TikTok-trúði“ eða sjálfsögð markaðssetning? Páll Baldvin fer fram gegn tillögu kjörnefndar Menningarvaktin: Ráðning óperustjóra jafn spennandi og þjálfara KR Sjá meira
Heitasta listapar landsins býður í heimsókn Listræna kærustuparið Saga Sigurðardóttir og Vilhelm Anton Jónsson ætla að veita gestum og gangandi innsýn í skapandi hugarheima sína á Menningarnótt með opinni vinnustofu. Blaðamaður heyrði í Sögu og fékk að heyra nánar frá þessum viðburði. 19. ágúst 2022 08:01
„Minnir mann á hvað þetta snýst allt um“ Fjöldin allur af fjölbreyttu fólki í ólíku formi kemur saman á laugardaginn og hleypur til styrktar mikilvægra málefna í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka. Lífið á Vísi tók púlsinn á nokkrum hlaupurum sem eru þekktir einstaklingar í samfélaginu. Þau fara ólíkar vegalengdir fyrir ólíkan málstað en eru sammála um samheldnina, fegurðina og gleðina sem einkennir þessa morgunstund á Menningarnótt. 18. ágúst 2022 15:30
Þétt dagskrá á langþráðri Menningarnótt í Reykjavík Menningarnótt verður loksins haldin á ný þann 20. ágúst næstkomandi. Blaðamannafundur fór fram í dag þar sem dagskráin var kynnt ásamt ýmsum skemmtiatriðum. Vísir sýndi frá fundinum í beinni útsendingu. 16. ágúst 2022 13:10
Allt sem þú þarft að vita um veisluna á Menningarnótt Menningarnótt Reykjavíkurborgar verður haldin hátíðleg á morgun, þann 20. ágúst eftir langa bið og er dagskráin troðfull að vanda. Vísir setti saman stutt yfirlit með helstu upplýsingum og skemmtilegum viðburðum fyrir þau sem ætla að gera sér ferð í bæinn á þessum hátíðisdegi. 19. ágúst 2022 09:30