Lagið sem heitir Limitless og er falleg ballaða er talsvert ólíkt fyrstu smáskífu plötunnar, Snowblind. Í texta lagsins eru heimspekilegar pælingar um neyslumenningu og ys og þys hins daglega lífs og hversu ómerkilegt og smálegt slíkt er í samanburði við fegurð og stærð alheimsins. Á meðan textinn hvetur hlustandann til að sjá hlutina frá öðru sjónarhorni, býður draumkenndur hljóðheimurinn upp á ferðalag út í víðáttur geimsins þar sem okkar jarðvist verður agnarsmá.

Það er mikið um að vera hjá Ásgeiri á þessu ári því ásamt því að gefa út nýja plötu, fagnar hann 10 ára afmæli plötunnar Dýrð í dauðaþögn sem naut mikilla vinsælda um heim allan. Afmælinu verður m.a. fagnað með stórtónleikum í Hörpu þann 27. ágúst. Miðasala á tónleikana fer fram á Tix. Framundan hjá Ásgeiri er jafnframt fjöldinn allur af tónleikum um Evrópu til að kynna nýja plötu.
Hér má sjá Tónleikadagskrá Ásgeirs:
27/08 – Eldborg í Hörpu, Reykjavík
28/09 – Bürgerhaus Stollwerck, Köln, Þýskalandi
29/09 – Freiheitshalle, München, Þýskalandi
01/10 – Markthalle, Hamborg, Þýskalandi
02/10 – Botanique, Brussel, Belgíu
03/10 – Paterskerk, Eindhoven, Hollandi
05/10 – La Cigale, París, Frakklandi
06/10 – Central Station, Darmstadt, Þýskalandi
07/10 – Taubchenthal, Leipzig, Þýskalandi
09/10 – X-Tra, Zurich, Sviss
10/10 – Les Docks, Lausanne, Sviss
12/10 – A38 Ship, Búdapest, Ungverjalandi
13/10 – Arena Club, Vín, Austurríki
14/10 – Locomotive Club, Bologna, Ítalíu
16/10 - La Grand Mix, Tourcoing, Frakklandi
17/10 – Tivoli Vrendenburg - Grote Zaal, Utrecht, Hollandi
Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband með því að senda póst á albumm@albumm.is.