Allt að átján stiga hiti í dag Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 11. júní 2022 07:35 Við Laugarvatn. Vísir/Vilhelm. Veðrinu verður nokkuð misskipt í dag, ef marka má veðurspá. Spáð er svölu verði fyrir norðan en allt að átján stiga hita sunnan heiða.
Reikna má með að norðlæg átt ráði ríkjum í dag. Það þýðir svalt veður fyrir norðan með rigningu eða súld. Sunnan heiða verður hins vegar víða bjart með köflum, hiti upp í átján stig. Útlit er þó fyrir skýjað veður og vætu austur af Öræfum og líkur á síðdegisskúrum á Suðurlandi. Á morgun, sjómannadag, stefnir í hægan vind víðast hvar og dregur úr vætunni um allt land. Úrkomulítið eftir hádegi, en áfram útlit fyrir stöku síðdegisskúrum á Suðurlandi. Staðan á hádegi.Veðurstofan Það byrjar að rigna suðvestantil seint annað kvöld, en framundan er vætusöm vika um sunnanvert landið, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Veðurhorfur á landinu Norðlæg átt 3-10 m/s og víða rigning eða súld um landið norðan- og austanvert, en bjart með köflum annars staðar og líkur á stöku síðdegisskúrum syðst. Þykknar upp með lítilsháttar vætu suðvestanlands undir kvöld. Hiti 5 til 10 stig fyrir norðan, en upp í 18 stig sunnantil að deginum. Breytileg átt 3-8 m/s á morgun og úrkomulítið eftir hádegi. Byrjar að rigna suðvestantil seint annað kvöld. Hiti breytist lítið. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á sunnudag (sjómannadagurinn): Norðlæg átt 3-10 m/s um landið norðanvert, rigning eða súld og hiti 4 til 9 stig. Vestlæg átt 3-10 sunnantil, en strekkingur syðst. Víða skýjað með köflum og stöku skúrir. Hiti 11 til 18 stig. Úrkomulítið um allt land undir kvöld. Á mánudag: Sunnan og suðaustan 5-10 m/s og rigning, en skýjað og þurrt norðaustantil. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast á Norðausturlandi. Á þriðjudag: Suðlæg átt 5-13 m/s og rigning eða skúrir. Úrkomulítið fyrir norðan og léttir þar til seinnipartinn. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast norðaustantil. Á miðvikudag og fimmtudag: Suðlæg átt og vætusamt, en þurrt að mestu norðaustantil. Hægt kólnandi. Á föstudag (lýðveldisdagurinn): Útlit fyrir norðvestlæga átt og stöku skúri á víð og dreif. Kólnar lítillega fyrir norðan.
Veður Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Sjá meira