„Ótrúlega sterkur hópur sem vinnur kraftaverk á örfáum dögum“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 25. maí 2022 07:00 Það er mikið um að vera á útskriftarsýningu LHÍ, Verandi vera, á Kjarvalsstöðum. Owen Fiene Útskriftarnemar við myndlistar, hönnunar og arkitektúrs deild Listaháskóla Íslands standa fyrir samsýningu á Kjarvalsstöðum um þessar mundir. Sýningin ber nafnið Verandi vera, er opin öllum og stendur til næstkomandi sunnudags, 29. maí.
Hildigunnur Birgisdóttir er sýningastjóri myndlistarhluta sýningarinnar og þær María Kristín Jónsdóttir og Sara Jónsdóttir eru sýningarstjórar hönnunar og arkítektúrs. Blaðamaður hafði samband við þær og fékk að heyra nánar frá ferlinu á bak við sýninguna. Ýmis listform njóta sín á sýningunni Verandi vera.Owen Fiene Allir mjög stoltir „Við sýningastjórarnir hittumst og ræddum saman í aðdraganda sýningarinnar og vorum sammála um að tíðarandinn hjá nemendum sé mildur en áríðandi og að mörg verkana leiti inn á við, og beina jafnvel áhrifum sínum í innra líf áhorfandans, þar sem tilveran er sett í samhengi. Þannig kom titill sýningarinnar til: Verandi vera,“ segir Hildigunnur. Samkvæmt henni gekk furðu vel að setja upp sýningu þessara ólíku myndlistarmanna. Sýningarstjórar segja tíðarandinn hjá nemendum mildan en áríðandi.Owen Fiene „Þótt þau séu ólík þá má greina ákveðinn samhljóm og þroska hjá hópnum. Hópurinn er líka búinn að vera samferða síðustu ár og þau þekkja þarfir hvers annars og hafa tekið tillit til þeirra og jafnvel stungið upp á að ákveðin verk tali vel saman. Ég er svo heppin að hafa kennt þessum hópi áður og því búin að fylgjast með þeim þessi ár sem þau hafa dvalið í skólanum. Undirbúningur sýningarinnar hófst fyrir alvöru í byrjun vorannar. Sýningin byrjar að taka á sig mynd í apríl og síðustu dagana í uppsetningu verður svo sýningin endanlega til. Að sýningunni kemur ótrúlega sterkur hópur nemenda, kennara, tæknifólks, vina og vandamanna sem vinna kraftaverk á örfáum dögum. Það eru allir mjög stoltir af sýningunni.“ Áríðandi mildi Í sýningartexta Hildigunnar segir meðal annars að sýningin gefi áhorfendum aðgang að hugarheimi þeirra heim hafa dvalið í Listaháskólanum síðustu þrjú ár að rækta sín hugðarefni við krefjandi aðstæður. „Ávextirnir eru eftir því áríðandi. Þeir birtast okkur sem gátt inn í ný sjónarhorn sem munu leiða okkur áfram veginn, inn í óskrifaða en skilyrta framtíðina. Þetta samfélag nemenda er tillitsamt og því er annt um þig, kæri áhorfandi. Þau vilja okkur fyrir bestu. Vinsamlegast ekki missa af áríðandi mildi þeirra.“ Útskriftarnemendur LHÍ sýna afrakstur síðustu þriggja ára á Kjarvalsstöðum.Owen Fiene Hlý og falleg orka Sara Jónsdóttir og María Kristín Jónsdóttir, sýningarstjórar útskriftarsýningar BA nema í hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands, segja ferlið hafa gengið virkilega vel. „Það var einstaklega ánægjulegt og gefandi að vinna með og kynnast þessum ljúfa hópi á lokametrum náms þeirra við Listaháskólann. Frá fyrstu stundu uppsetningar sýningarinnar mætti okkur hlý og falleg orka sem fylgdi okkur í gegnum allt ferlið. Eftir þessi kynni getum við einlægt sagt að við hlökkum til að hitta þau aftur og þá sem kollega okkar í hönnunarbransanum.“ Listinni fylgir gjarnan líf og fjör.Owen Fiene Leiðsögn sýningarstjóra Sýningin er sem áður segir opin öllum og ekkert kostar inn. „Við hvetjum fólk eindregið til þess að fara á útskriftarsýninguna á Kjarvalsstöðum og kynna sér verk næstu kynslóðar hönnuða og arkitekta – sem sannarlega spanna vítt svið og snerta á ólíkum flötum lífsins, allt frá brjóstamjólk, rafmyntum og drasl skúffum yfir í vistþorp og storm tilfinninga svo eitthvað sé nefnt. Það er líka upplagt að koma á Uppstigningardag, fimmtudaginn 26. maí kl. 20:30, þegar við þrjár, sýningarstjórar sýningarinnar, verðum með leiðsögn um safnið,“ segja Sara og María Kristín að lokum. Gestir virða fyrir sér lokaverkefni nemanda um brjóstamjólk.Owen Fiene Nemendur af eftirfarandi brautum sýna á Kjarvalsstöðum:Myndlist (Vestursalur, Vesturgangur og útisvæði) Arkitektúr, Fatahönnun og Grafísk hönnun (Austursalur) Vöruhönnun (Austurgangur) Sýningin er sem áður segir opin öllum og ekkert kostar inn.
Myndlist Menning Tengdar fréttir Útskriftarsýning fatahönnunarnema LHÍ Sýnt verður frá útskriftarsýningu fatahönnunarnema frá Listaháskóla Íslands í beinni útsendingu hér á Vísi klukkan 19:30. Vegna heimsfaraldurs var brugðið á það ráð að hafa sýninguna með óhefðbundnum hætti en þetta verður blanda af myndböndum og tískusýningu. 1. september 2020 17:30 Mest lesið „Það eru komnir þrír mánuðir síðan pabbi minn sá fram á það að geta ekki lifað lengur“ Lífið Janet Jackson biðst afsökunar á undarlegum ummælum Lífið Var talin vera hommi og lögð í einelti Lífið Borðar það sem alltaf hefur verið til og léttist og léttist Lífið Aldrei litið betur út þrátt fyrir alvarlegt slys Lífið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið, en þá tapar sambandið“ Makamál Ísland með auga fuglsins Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Ný plata frá Birgi Hákoni: „Ég er ekki lengur þessi gaur nema í tónlistinni“ Lífið „Við munum ekki eldast saman“ Lífið Fleiri fréttir Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Þarf ekkert að þvælast fyrir sjálfri sér „Smá eins og maður sé allsber fyrir framan alþjóð“ Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Óður til kvenlíkamans í öllu sínu veldi Óli Egils snýr sér að Ladda eftir Bubba Snæbjörn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói Sjá meira
Útskriftarsýning fatahönnunarnema LHÍ Sýnt verður frá útskriftarsýningu fatahönnunarnema frá Listaháskóla Íslands í beinni útsendingu hér á Vísi klukkan 19:30. Vegna heimsfaraldurs var brugðið á það ráð að hafa sýninguna með óhefðbundnum hætti en þetta verður blanda af myndböndum og tískusýningu. 1. september 2020 17:30