Dálítil él norðanlands og skúrir suðaustanlands Atli Ísleifsson skrifar 4. maí 2022 07:10 Hiti verður á bilinu núll til átta stig yfir daginn. Myndin er telin á Úlfarsfelli í morgun. Vísir/Vilhelm Veðurstofan spáir minnkandi norðlægri átt í dag, fimm til þrettán metrar á sekúndu en lægir smám saman í dag. Dálítil él á norðanverðu landinu og skúrir suðaustanlands, en annars yfirleitt þurrt.
Á vef Veðurstofunnar segir hiti verði á bilinu núll til átta stig yfir daginn, mildast sunnantil en allvíða næturfrost. „Á morgun gengur lægð austur yfir landið. Áttin verður því breytileg, víða kaldi eða strekkingur og úrkoma með köflum, en þurrt að kalla á Norður- og Austurlandi fram eftir degi. Úrkoman verður ýmist snjókoma, slydda eða rigning á láglendi, en á fjallvegum verður snjókoman einráð. Annað kvöld bætir svo í vind. Spákortið fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Breytileg átt 5-13 m/s og rigning eða snjókoma með köflum, en úrkomulítið á Austurlandi. Hiti 0 til 8 stig. Víða vestan og norðvestan 8-15 um kvöldið með snjókomu eða éljum og kólnar. Á föstudag: Snýst í suðvestan og vestan 5-13 með éljum eða skúrum, en allhvöss norðvestanátt austantil í fyrstu. Hiti um eða yfir frostmarki. Léttir til á suðaustanverðu landinu og hiti 4 til 7 stig þar. Á laugardag: Suðvestan og sunnan 5-10 og skúrir, en bjart að mestu austanlands. Hiti 3 til 9 stig. Á sunnudag: Suðaustan 5-13 og súld eða rigning með köflum, en úrkomulítið um landið norðaustanvert. Hiti 5 til 13 stig. Á mánudag: Breytileg átt og rigning víða um land. Áfram milt í veðri. Á þriðjudag: Útlit fyrir norðlæga átt með dálítilli vætu, en þurrt að kalla syðra. Heldur kólnandi.
Veður Mest lesið Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Komið að ögurstundu Erlent Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Innlent Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Innlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Fleiri fréttir Hviður þvert á Vesturlandsveg á Kjalarnesi Oftar en ekki viðvörun í gildi í mars Má búast við mikilli úrkomu á Austfjörðum Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Minnkandi vindur og stöku él Víða skúrir og hvessir eftir hádegi Allhvass vindur og rigning Önnur lægð nálgast landið Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Vaktin: Austanbylur annan í páskum Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Logn í dag á undan storminum á morgun Mæla með að fólk leggi fyrr af stað Gul viðvörun vegna austan stórhríðar annan í páskum Þungfært víða um land Kalt í veðri miðað við árstíma Snjóflóð skammt frá borginni líklega af mannavöldum Þungbúið fyrir norðaustan en heiðskírt víða annars staðar Gular viðvaranir taka gildi í enn eitt skiptið Gular viðvaranir vegna storms í kvöld og á morgun Hæðarhryggur yfir landinu í dag og stormur í nótt Lægð með snjókomu fer hratt yfir landið Snýst í austan og suðaustan í kvöld með snjókomu og slyddu Slydduél og snjókoma í kortunum Gular veðurviðvaranir í kortunum Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu á morgun Lægðin heldur áfram að angra landsmenn Skólahaldi ekki aflýst en raskanir boðaðar Vaktin: Þjóðin býr sig undir illviðri Sjá meira