Varð fljótt vinsælasti tónlistarmaður landsins Steinar Fjeldsted skrifar 12. apríl 2022 23:56 Ásgeir Trausti heldur upp á tíu ára afmæli plötunnar Dýrð í dauðaþögn með stórtónleikum í Eldborg 27. ágúst. Ásgeir stígur á svið með stórhljómsveit og strengjum og verður platan flutt í heild sinni í bland við frumflutning á glænýju efni. Tíu ár eru liðin síðan Ásgeir Trausti gaf út sín fyrstu lög á vormánuðum 2012 og varð fljótt vinsælasti tónlistarmaður landsins. Platan hans Dýrð í dauðaþögn kom út sama ár og sló öll íslensk sölumet. Platan hefur selst í yfir 40.000 eintökum og setið samtals 400 vikur á Tónlistanum sem er yfirlit yfir mest seldu plötur landsins. Þannig hefur þessi frumraun Ásgeirs, sem var tvítugur þegar platan kom út, skipað sér í sess með ekki ómerkari plötum en Gling Gló og barnaplötunum sígildu Kardemommubærinn, Dýrin í Hálsaskógi og Einu sinni var sem ein af 5 mest seldu plötu Íslandssögunnar. Vestfirska nýstirnið Árný Margrét hitar upp. Sala hefst 22. apríl kl. 10. Forsala hefst 20. apríl kl. 10 Skráning í forsöluna HÉR Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is. Tónlist Mest lesið Hræðilegir dagar í Partylandi Lífið samstarf Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Tónlist Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hvað veistu um… pitsur? Lífið Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síðdegis? Áskorun Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Menning Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Lífið
Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.
Tónlist Mest lesið Hræðilegir dagar í Partylandi Lífið samstarf Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Tónlist Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hvað veistu um… pitsur? Lífið Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síðdegis? Áskorun Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Menning Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Lífið