Það hefur verið mikill áhugi á miðum á leiki íslensku stelpnanna og í fyrri tveimur söluglugganum hafa miðarnir selst upp.
Knattspyrnusamband Íslands hefur nú látið vita að það eru nokkrir miðar að losna og verður örugglega mikill áhugi á þeim eins og hinum.
UEFA hefur upplýst KSÍ um að 200-300 DOTTIR miðar til viðbótar á leiki Íslands í riðlakeppninni á EM 2022 verði lausir í sölu þann 16. mars á miðasöluvef UEFA. Hver kaupandi mun geta keypt allt að 10 miðum á hvern leik. https://t.co/0wIWYVypMO
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) March 9, 2022
Vandamálið er að fyrstu tveir leikir íslenska liðsins fara í raun fram á alltof litlum leikvangi og því er barist um miðana. Þetta er Manchester City Academy leikvangurinn í Manchester sem tekur bara sjö þúsund manns.
Miðasala í stuðningsmannahólf þátttökuliðanna á EM 2022 hófst síðastliðið haust í glugga sem stóð frá lokum október og inn í miðjan nóvember.
Þar fengu stuðningsmenn Íslands tækifæri til að kaupa svokallaða DOTTIR miða - í stuðningsmannahólf íslenska liðsins. DOTTIR miðar á fyrstu tvo leikina - gegn Belgíu og Ítalíu í Manchester - seldust fljótt upp. Í nóvember var síðan hundrað DOTTIR miðum á leikina bætt í sölu, og aftur seldust þeir hratt upp.
Nú hefur UEFA upplýst KSÍ um að fleiri DOTTIR miðar verði lausir í sölu til stuðningsmanna Íslands, miðar sem losna af ýmsum ástæðum í lokaundirbúningi og skipulagi mótsins. Um er að ræða 200-300 DOTTIR miða á alla leikina þrjá í riðlakeppninni, og getur hver kaupandi keypt allt að tíu miðum á hvern leik.
Sala á þessum DOTTIR miðum opnar á miðasöluvef UEFA miðvikudaginn 16. mars klukkan 10:00 og lokar föstudaginn 18. mars klukkan 10:00.
Lokagluggi almennrar miðasölu opnar síðan á miðasöluvef UEFA 28. mars og rétt er að geta þess að enn eru almennir miðar lausir á síðasta leik íslenska liðsins í riðlinum, gegn Frakklandi í Rotherham.