Hilmar varð fyrir áfalli í Boganum Sindri Sverrisson skrifar 9. mars 2022 10:27 Hilmar Árni Halldórsson hefur verið lykilmaður í liði Stjörnunnar um árabil en verður ekki með í Bestu deildinni í sumar. vísir/Elín Hilmar Árni Halldórsson, lykilmaður í knattspyrnuliði Stjörnunnar, mun ekki spila meira með liðinu á þessu ári.
Eins og óttast var er nú endanlega ljóst að Hilmar Árni sleit krossband í hné þegar hann meiddist í leik gegn Þór í Boganum á Akureyri. Ágúst Gylfason þjálfari Stjörnunnar staðfesti þetta við 433.is. Stjörnumenn voru afar ósáttir eftir leikinn í Boganum og kölluðu knatthúsið slysagildru. Helgi Hrannar Jónsson, formaður meistaraflokks Stjörnunnar, gagnrýndi Akureyrarbæ og KSÍ harðlega fyrir aðgerða- og skeytingarleysi gagnvart Boganum og sagði alla leikmenn Stjörnunnar hafa fundið fyrir eymslum eftir leikinn í Lengjubikarnum 19. febrúar. Hilmar Árni, sem er þrítugur, hefur verið sannkallaður lykilmaður í liði Stjörnunnar frá því að hann kom í Garðabæinn frá Leikni fyrir tímabilið 2016. Hann skoraði sex mörk í Pepsi Max-deildinni í fyrra en hefur átt þrjár leiktíðir þar sem hann hefur skorað 10 mörk eða fleiri og alls hefur hann skorað 63 mörk í 147 leikjum í efstu deild, sem miðjumaður. Stjarnan þarf núna að spjara sig án Hilmars og hans marka: „Þetta er gríðarlegt áfall. Verst fyrir Hilmar sjálfan auðvitað, hann var búinn að vera á eldi með okkur í vetur. Við reynum að fá hann inn í teymið á einhvern hátt,“ sagði Ágúst við 433.is en hann tók við þjálfun Stjörnunnar í vetur.
Besta deild karla Stjarnan Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Man. United – Roma | Róm var ekki byggð á einni nóttu Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira