Subaru Outback fékk hæstu einkunn Euro NCAP Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 8. febrúar 2022 07:01 Subaru Outback. Aðstoðarkerfi Subaru Outback fékk hæstu meðaleinkunn hjá Euro NCAP, fimm stjörnur fyrir framúrskarandi öryggi og afköst. Euro NCAP, er sameign bifreiðaeigendafélaganna í Evrópu. Úttektin á aðstoðarbúnaði fólksbílaframleiðenda fór fram á árunum 2020 og 2021.
Í prófunum Euro NCAP, sem stjórnvöld Evrópuríkja standa að ásamt samtökum neytenda og bifreiðaeigenda, hlaut nýjasta útgáfa Subaru á Eyesight Driver Assist öryggiskerfinu 95% stiga þegar kom að afköstum kerfisins og miklu alhliða öryggi við ólíkar aðstæður. Úttektin var gerð í kjölfar innleiðingar Euro NCAP á nýjum og kröfuharðari öryggisprófunum frá því sem áður var og hefur reynst talsverð áskorun fyrir bílaframleiðendur. Outback fékk 88% fyrir vernd fullorðinna, 89% fyrir vernd barnungra farþega, 84% fyrir vernd viðkvæmra vegfarenda (hjólandi og gangandi vegfarendur) og að lokum fékk Outback 95% fyrir akstursaðstoðarkerfið EyeSight eins og áður segir. Gæði kerfisins sem staðfest er af Euro NCAP endurspeglar þá nálgun Subaru sem hefur það að markmiði að eigi síðar en 2030 bíði hvorki nokkur ökumaður né farþegi í Subaru bana í umferðarslysi auk þess sem markmiðið er að enginn gangandi eða hjólandi vegfarandi látist af völdum ákeyrslu við Subaru.
Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Erlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Erlent