Allkröpp lægð nálgast landið Atli Ísleifsson skrifar 31. janúar 2022 06:52 Skyggni gæti orðið mjög takmarkað um tíma á Suðvesturlandi og því eru gular veðurviðvaranir í gildi á höfuðborgarsvæðinu, Faxaflóa og Suðurlandi. Veðurstofan Allkröpp lægð nálgast nú landið, en gengur þá í suðaustanstrekking með snjókomu sunnan- og vestanlands undir hádegi, en síðar einnig í öðrum landshlutum.
Frá þessu segir á vef Veðurstofunnar. Þar segir að reikna megi með minnkandi frosti og að skyggni geti orðið mjög takmarkað um tíma á Suðvesturlandi og því séu gular veðurviðvaranir í gildi á höfuðborgarsvæðinu, Faxaflóa og Suðurlandi. „Snýst í suðvestanátt með skúrum eða slydduéljum suðvestanlands síðdegis og hlýnar. Hægara og rofar til A-lands í kvöld, en allhvöss norðaustanátt með snjókomu norðvestan til. Lægðin hreyfist norðaustur yfir landið í kvöld og nótt, en snýst þá allhvassa norðvestanátt með éljum austan til, en lægir og rofar til fyrir vestan og kólnar. Fremur hægir vindar og talsvert frost síðdegis á morgun, en suðaustankaldi og fer að snjóa suðvestan til seint um kvöldið. Útlit fyrir vetrarlegt og kalt veður það sem eftir lifir vikunnar.“ Gular viðvaranir: Höfuðborgarsvæðið. Suðaustan hvassviðri og snjókoma. 31. jan. kl. 13:00 – 15:00 Suðurland. Suðaustan hvassviðri og snjókoma. 31. jan. kl. 13:00 – 16:00 Faxaflói. Suðaustan hvassviðri og snjókoma. 31. jan. kl. 13:00 – 16:00 Spákortið fyrir klukkan 16.Vísir/Vilhelm Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Vestlæg eða breytileg átt, 5-13 m/s, en 13-20 A-til fyrri part dags. Víða dálítil él, en þurrt að kalla S- og V-lands fram undir kvöld. Frost 1 til 12 stig, kaldast inn til landsins. Á miðvikudag: Suðvestlæg átt, 5-10 m/s, en norðaustan 8-15 á Vestfjörðum og víða él, en úrkomulítið A-lands. Frost víða 1 til 12 stig. Á fimmtudag: Norðan og norðvestan 10-18 m/s og éljagangur, hvassast úti við N-ströndina, en bjart með köflum sunnan heiða. Talsvert frost um land allt. Á föstudag: Norðvestanstrekkingur og dálítil él NA-til, en gengur í austanhvassviðri og fer að snjóa S- og V-lands um kvöldið. Áfram kalt í veðri. Á laugardag og sunnudag: Breytilegar áttir og snjókoma eða él víða um land, en dregur smám saman úr frosti.
Veður Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Sjá meira