Gengur í suðaustankalda með snjókomu suðvestantil Atli Ísleifsson skrifar 14. janúar 2022 07:18 Gengur í norðvestanhvassviðri með snjókomu eða slyddu suðaustan til á morgun, en hægara og dálítil él í öðrum landshlutum. Vísir/RAX Það gengur í suðaustan átta til fimmtán metra á sekúndu með snjókomu eða slyddu, fyrst suðvestantil, en þrettán til átján metrar á sekúndu við suðurströndina. Hiti verður á bilinu núll til sjö stig, hlýjast syðst.
Suðlægari áttir og rigning sunnantil upp úr hádegi, en rofar smám saman til austanlands. „Snýst í norðvestanátt í kvöld og snjóar talsvert norðvestan til og víða dálítil snjókoma með köflum fyrir austan í nótt. Kólnar talsvert í veðri. Gengur í norðvestanhvassviðri með snjókomu eða slyddu suðaustan til á morgun, en hægara og dálítil él í öðrum landshlutum. Hvessir heldur og fer að snjóa á Vesturlandi annað kvöld, en lægir þá jafnframt og rofar til eystra. Enn eitt úrkomusvæði fer síðan austur yfir landið á sunnudag. Eins og heyra má þá er spáð órólegu vetrarveðri um helgina og því um að gera að fylgjast vel með veðurspám og -viðvörnum, ef við á, einkum ef menn eiga mikið undir veðri.“ Spákort fyrir klukkan 15.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Norðvestlæg átt, 10-18 m/s og snjókoma um landið A-vert, en annars hægari og dálítil él. Vestlægari og rofar til A-lands seinnipartinn, en fer að snjóa á V-landi seint um kvöldið. Víða vægt frost, en frostlaust með S-ströndinni. Á sunnudag: Vestlæg átt, 8-15 m/s, él og talsvert frost, en gengur í suðvestan 13-18 m/s með snjókomu eða slyddu, en síðar rigningu og hlýnandi veðri eftir hádegi. Heldur hægara og þurrt NA-til fram á kvöld. Á mánudag: Suðvestan 13-18 m/s með rigningu, en þurrt að mestu um landið austanvert. Hiti 3 til 8 stig. Á þriðjudag: Vestlægar áttir með rigningu eða slyddu, en síðar éljum, en úrkomulítið eystra fram eftir degi. Kólnandi veður. Á miðvikudag: Líklega vestlæg átt með dálitlum éljum, en bjartviðri A-til. Dregur úr frosti. Á fimmtudag: Útlit fyrir suðlæga átt með hlýnandi veðri og vætu öðru hvoru á V-verðu landinu.
Veður Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Fleiri fréttir Hviður þvert á Vesturlandsveg á Kjalarnesi Oftar en ekki viðvörun í gildi í mars Má búast við mikilli úrkomu á Austfjörðum Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Minnkandi vindur og stöku él Víða skúrir og hvessir eftir hádegi Allhvass vindur og rigning Önnur lægð nálgast landið Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Vaktin: Austanbylur annan í páskum Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Logn í dag á undan storminum á morgun Mæla með að fólk leggi fyrr af stað Gul viðvörun vegna austan stórhríðar annan í páskum Þungfært víða um land Kalt í veðri miðað við árstíma Snjóflóð skammt frá borginni líklega af mannavöldum Þungbúið fyrir norðaustan en heiðskírt víða annars staðar Gular viðvaranir taka gildi í enn eitt skiptið Gular viðvaranir vegna storms í kvöld og á morgun Hæðarhryggur yfir landinu í dag og stormur í nótt Lægð með snjókomu fer hratt yfir landið Snýst í austan og suðaustan í kvöld með snjókomu og slyddu Slydduél og snjókoma í kortunum Gular veðurviðvaranir í kortunum Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu á morgun Lægðin heldur áfram að angra landsmenn Skólahaldi ekki aflýst en raskanir boðaðar Vaktin: Þjóðin býr sig undir illviðri Sjá meira