Ásdís Eir og Óli Páll til Lucinity Atli Ísleifsson skrifar 16. desember 2021 11:35 Ásdís Eir Símonardóttir og Óli Páll Geirsson. Aðsend Ásdís Eir Símonardóttir og Óli Páll Geirsson hafa verið ráðin til upplýsinga- og fjártæknifyrirtækisins Lucinity
Í tilkynningu segir að Ásdís Eir hafi verið ráðin sem „VP of People and Culture“ og Óli Páll sem „VP of Data Science“. Um félagið segir að Lucinity nýti gervigreind í hugbúnaði til að auðvelda bönkum og fjártæknifyrirtækjum að koma auga á hegðun og færslur sem tengjast peningaþvætti og fjármálaglæpum. „Ásdís Eir leiðir uppbyggingu á hvetjandi starfsumhverfi og menningu þar sem áhersla er lögð á umhyggju, nýsköpun og tækifæri til vaxtar í alþjóðlegu umhverfi. Óli Páll er doktor í tölfræði og leiðir gagnavísindateymi Lucinity. Teymið hefur það hlutverk að þróa gervigreindarlíkön og aðferðir sem auðvelda fjármálafyrirtækjum til að taka gagnadrifnar og áhrifaríkar ákvarðanir í baráttunni gegn peningaþvætti. Ásdís starfaði áður hjá samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur (OR). Hjá OR var hún mannauðsleiðtogi Orku náttúrunnar, Carbfix og sviða Orkuveitunnar. Hún var bakhjarl stjórnenda við framkvæmd starfsmannastefnu og leiddi fjölbreytt verkefni sem stuðla að því að skapa eftirsóknarverðan vinnustað. Ásdís átti stóran þátt í að OR fékk Menntaverðlaun atvinnulífsins 2020. Hún er vinnusálfræðingur að mennt, með MS-gráðu í félags- og vinnusálfræði frá Háskóla Íslands og BS-gráðu í sálfræði frá sama skóla. Ásdís er formaður Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi. Hlutverk félagsins er að efla fagmennsku í mannauðsstjórnun í þágu atvinnulífsins Óli Páll starfaði áður sem gagnastjóri Reykjavíkurborgar á þjónustu- og nýsköpunarsviði. Þar byggði hann upp og leiddi skrifstofu gagnaþjónustu en hún styður við gagnadrifna ákvörðunartöku innan borgarinnar og skapar virði úr gögnum hennar. Hann sat einnig í framkvæmdastjórn sviðsins og í aðgerðastjórn stafrænna umbreytinga hjá borginni. Þar áður var Óli Páll sérfræðingur í gagnavísindum hjá Landsbankanum. Hann er með doktorsgráðu í tölfræði frá Háskóla Íslands og B.Sc. gráðu í stærðfræði frá sama skóla. Samhliða störfum sínum starfar Óli Páll sem aðjúnkt í tölfræði við Háskóla Íslands,“ segir í tilkynningunni.
Vistaskipti Fjártækni Upplýsingatækni Mest lesið Enn eitt félag Quangs gjaldþrota Viðskipti innlent Svekktur en ekki hissa á færri íbúðum í byggingu Viðskipti innlent Færri íbúðir í byggingu en fyrir ári Viðskipti innlent „Við eigum margar rómantískar stundir í vinnunni“ Atvinnulíf Gengi Icelandair flaug upp á við Viðskipti innlent Gervigreind og tíska: Hafa nú þegar fengið 100 milljónir í styrki Atvinnulíf Vill laða að lágverðsverslun á Krókinn Viðskipti innlent Milljarður í arðgreiðslur hjá Toyota Viðskipti innlent Spá 7,5 prósent stýrivöxtum í lok 2025 Viðskipti innlent Langaði svakalega mikið í sleik við George Clooney Atvinnulíf Fleiri fréttir Enn eitt félag Quangs gjaldþrota Svekktur en ekki hissa á færri íbúðum í byggingu Færri íbúðir í byggingu en fyrir ári Gengi Icelandair flaug upp á við Vill laða að lágverðsverslun á Krókinn Spá 7,5 prósent stýrivöxtum í lok 2025 Fura Ösp nýr formaður stjórnar hjá Brandenburg Tekur við stöðu forstöðumanns þjónustu hjá Reitum Ráðin markaðsstjóri Sensa Milljarður í arðgreiðslur hjá Toyota Verðtryggð jafngreiðslulán aðeins í boði fyrir fyrstu kaupendur 4,4 milljarðar til borgarinnar vegna framkvæmda á Hólmsheiði Fegurð er glæpur kom út í mínus Skuldar félagi Einars 44 milljónir og gæti misst 295 milljóna hús „Alls konar fólk heyrt í mér um alls konar hluti“ Bein útsending: Ársfundur atvinnulífsins Hjalti Már tekur við af Hreiðari Þór hjá Datera Stórfyrirtæki hyggja á uppbyggingu á Hólmsheiði Bæta við níunda áfangastað sínum á Spáni Heildareignir einstaklinga jukust um rúm fimm prósent á síðasta ári Fleiri leigi nú af vinum og ættingjum Sjúkratryggingar grunaðar um ríkisaðstoð Sparar kylfingum tíma með rástímaleitarsíðu Sótti 410 milljónir og margfaldaði starfsmannafjöldann Aðgerðir stjórnvalda eigi líka að taka mið af æviskeiði Steinar fjárfestir í Snjallgögnum Bjørn Richard til liðs við Athygli Fljúga til Gautaborgar næsta sumar Meirihluti auglýstra nýbygginga óseldur Sjálfbærnisviðið lagt niður og Erla Ósk hættir Sjá meira