Þetta er ekki grín.
Því vinnualkar geta einfaldlega upplifað kvíða yfir hátíðarnar.
Vanlíðan yfir því að vera ekki að vinna.
Hlakka til þegar fríið er búið.
Eða langar frekar að setjast niður við tölvuna en að vera með vinum og vandamönnum í jólaboðum.
Satt best að segja upplifa margir vinnualkar kvíða strax á aðventunni. Því tilhugsunin um það að vera frá vinnu og „ekkert“ að gera nema í fríi með fjölskyldunni er nánast eins og óbærileg.
Hér eru nokkur góð ráð fyrir vinnualka og hvernig hægt er að sporna við þessari líðan með því að taka smá snúning á viðhorfi og hugsunum.
Að breyta kvíða í tilhlökkun
Fólk sem upplifir sig sem vinnualka og á erfitt með að vera ekki að vinna, er oft drifið áfram af ákveðnu samviskubiti.
Löngunin til að afkasta, gera, framkvæma, klára….. er svo mikil að þegar viðkomandi er ekki á haus í vinnu, tekur við óróleikatilfinning sem í raun er ekki annað en sjálfskapað samviskubit yfir því að vera „ekki að gera neitt.“
Til þess að losna við þessar tilfinningar er gott að hugsa um jólin sem frábært tækifæri til að hlaða batteríin.
Því meira sem þú hvílist um jólin, því hressari og tvíefldari verður þú þegar þú mætir til vinnu á ný.
Eins er um að gera að minna sjálfan sig á að langbesta leiðin til að fá nýjar hugmyndir er hvíld.
Og muna að þótt kulnun hljómi eins og óraunverulegur óvinur í eyrum vinnualka, þá er kulnun staðreynd sem getur bitið ótrúlegasta fólk í rassinn.
Annað sem er ágætt fyrir vinnualka að hugsa um er hvað rannsóknir segja okkur um samveru með okkar nánustu.
Því samkvæmt fjölmörgum rannsóknum skiptir gott samband við okkar nánustu mjög miklu máli þegar kemur að okkar eigin líkamlegu og andlegu hreysti.
Í raun þýðir þetta að jólin eru frábær tími til að efla þetta samband. Ekki aðeins til að njóta heldur líka til að gefa okkur enn sterkari grunn fyrir allt næsta (vinnu-)ár.
Þá er mælt með því að vinnualkar sem eru almennt duglegir að hreyfa sig, nýti jólin fyrir góða hreyfingu. Enda getur endorfín gert kraftaverk fyrir bæði líkama og sál.
Hvaða fleira dettur þér í hug að hugsa um, sem gerir jólin að frábæru tækifæri en ekki kvíðvænlegum tíma frá vinnu?