Báðir bílarnir eru hraðskreiðustu útgáfur af hvorri gerð. Tesla Model Y Performance er léttari, hann er 2004 kg. og Mustang-inn er 2266 kg. Mustanginn er með stærri rafhlöðu eða 99 kWh og Model Y er með 80 kWh rafhlöðu.
Í fyrstu tilraun fór Mach-E hraðar af stað sem að einhverju leyti útskýrist af slakari viðbrögðum Tesla ökumannsins, sem þó að endingu náði fram úr og kom á undan í mark.
Seinni spyrnan fór enn betur af stað fyrir Mustang-inn en samt hafði Tesla-n betur. Þriðja keppnin var svo með rúllandi ræsingu frá um 50 km/klst. Tesla-n skyldi Mustang-inn eftir.
Einhverjar skýrslur hafi verið gefnar út um að Mustang-inn slái af þegar nokkrar sekúndur eru liðnar vegna þess hve mikill hiti myndast í aflrásinni. Þetta hefur ekki enn verið staðfest hvort það verði hægt að fá hugbúnaðaruppfærslu þegar fram líða stundir til að loka á þennan meinta útslátt.