Einstök meðferð við blöðrubólgu – án sýklalyfja Florealis 15. nóvember 2021 08:50 Allir geta fengið blöðrubólgu, en líffræði kvenna, meðganga, breytingaskeið og sjúkdómar s.s. sykursýki auka líkur á sýkingu. Jurtalyfið Lyngonia er heilsuvara vikunnar á Vísi. Florealis býður upp á jurtalyfið Lyngonia sem er eina viðurkennda meðferðin við endurteknum þvagfærasýkingum kvenna sem ekki er í flokki sýklalyfja. 60% kvenna fær blöðrubólgu Margar konur glíma við endurteknar þvagfærasýkingar, en um 60% kvenna fá sýkingu einhvern tímann á lífsleiðinni og allt að þriðjungur þeirra fær endurtekna sýkingu innan 6 mánaða. Allir geta fengið blöðrubólgu, en líffræði kvenna, meðganga, breytingaskeið og sjúkdómar s.s. sykursýki auka líkur á sýkingu. Blöðrubólga er almennt meðhöndluð með sýklalyfjum, en á undanförnum árum hefur ónæmi gegn sýklalyfjum aukist töluvert sem gerir meðferð ýmissa sýkinga erfiða. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) og aðrar alþjóðlegar stofnanir hafa lýst því yfir að sýklalyfjaónæmi sé ein mesta ógn við heilbrigði sem mannkynið stendur frammi fyrir í dag. Lyngonia - eina viðurkennda meðferðin án lyfseðils Lyngonia vinnur gegn einkennum vægra þvagfærasýkinga. Jurtalyfið byggir á virkum efnum úr sortulyngi (e. uva-ursi) sem hafa bakteríuhemjandi virkni og verka staðbundið í þvagrásinni. Lyngonia hefur því ekki áhrif á bakteríuflóru annars staðar í líkamanum, eins og þekkist með hefðbundin sýklalyf. Best er að byrja að taka Lyngonia um leið og einkenna verður vart. Lyfið er ekki ætlað sem fyrirbyggjandi meðferð. Lyngonia fæst í öllum apótekum án lyfseðils og inniheldur pakkningin allt að þrjá meðferðarskammta. Nánari upplýsingar má finna á Algengar spurningar um Lyngonia. Skráð örugg notkun í yfir 80 ár Lyngonia inniheldur virk efni úr sortulyngi, en jurtin er á meðal elstu lækningajurta á Íslandi. Hún hefur staðfesta virkni í klínískum rannsóknum og skráða örugga notkun í Evrópu í yfir 40 ár. Lyngonia er fyrsta jurtalyfið á Íslandi til að fá leyfi Lyfjastofnunnar. Hvað eru jurtalyf? Jurtalyf eru mjög vel skilgreind og þurfa að uppfylla sömu gæðakröfur og hefðbundin lyf. Þau veita vægari meðhöndlun og þar með vægari auka- og milliverkanir en hefðbundin lyf, sem gefur einstaklingum meiri tækifæri til sjálfsmeðhöndlunar við vægum, en algengum kvillum. Til að jurtalyf fái skráningu þarf að sýna fram á gæði, öryggi og verkun og er skráningin trygging fyrir því að varan uppfylli skilyrði heilbrigðisyfirvalda. Florealis – íslenskt jurtalyfjafyrirtæki Florealis býður upp á úrval skráðra jurtalyfja og lækningavara sem byggja á virkum náttúruefnum og styðja við meðhöndlun sjúkdóma á borð við kvíða, svefntruflanir, mígreni og gigt. Allt eru þetta algengir sjúkdómar sem skorta fjölbreyttari meðferðarúrræði. Gagnlegar upplýsingar Lyngonia er jurtalyf sem hefð er fyrir og ætlað konum eldri en 18 ára eftir að alvarleg veikindi hafa verið útilokuð af lækni. Notkun er 2 töflur 2-4 sinnum á dag og ekki skal nota lyfið lengur en í eina viku. Ef einkenni eru viðvarandi í meira en 4 daga eða versna við notkun skal hafa samband við lækni. Ekki á að nota Lyngonia ef truflun er á nýrnastarfsemi. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðil fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is og á www.florealis.is/lyngonia Heilsa Mest lesið Hefur aldrei upplifað aðra eins óvissu á þrettán ára ferli Viðskipti innlent Segir „Arnaldarvísitöluna“ lága í samanburði við margt annað Neytendur Telur að aðrar ferðaskrifstofur muni fylgja í kjölfarið Viðskipti innlent Tiltölulega lítil áhrif af breytingum Seðlabankans Viðskipti innlent Greiðir sér út allt að fimmtíu milljónir Viðskipti innlent Tango Travel hættir vegna gjaldþrots Play Viðskipti innlent Myndaveisla: Afreksfólk atvinnulífsins fjölmennti í höllina Framúrskarandi fyrirtæki Færir sig í Borgartúnið eftir stutta dvöl hjá ÍSÍ Viðskipti innlent Töldu hættu stafa af einkaþotufyrirtækinu sem var svipt starfsleyfi Viðskipti innlent Sverrir Einar söðlar um og selur Þrastalund Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bauhaus styrkir góð málefni fyrir jólin „Ég fæ hroll þegar fólk segist hafa notað sama lykilorðið í 20 ár“ Forvarnarverðlaun VÍS: „Öryggi er ekki samkeppnismál“ ÍMARk rýnir í markaðsheim framtíðarinnar Tengiltvinnari fyrir taugatrekkta Peltor og Dynjandi saman í 60 ár Framlína heilbrigðisþjónustunnar kallar eftir liðsauka Persónuleg reynsla varð að atvinnurekstri Rafmagnað fyrsta stefnumót við Nissan Ariya Í stuði í 130 ár: Virkjanir sem leystu af dísilvélar og knúðu síldarbæ KLAK health býður sprotafyrirtæki í heilsutækni velkomin Hreinsun þakrenna fyrirbyggir skemmdir Sjá meira
Lyngonia er jurtalyf sem hefð er fyrir og ætlað konum eldri en 18 ára eftir að alvarleg veikindi hafa verið útilokuð af lækni. Notkun er 2 töflur 2-4 sinnum á dag og ekki skal nota lyfið lengur en í eina viku. Ef einkenni eru viðvarandi í meira en 4 daga eða versna við notkun skal hafa samband við lækni. Ekki á að nota Lyngonia ef truflun er á nýrnastarfsemi. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðil fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is og á www.florealis.is/lyngonia
Heilsa Mest lesið Hefur aldrei upplifað aðra eins óvissu á þrettán ára ferli Viðskipti innlent Segir „Arnaldarvísitöluna“ lága í samanburði við margt annað Neytendur Telur að aðrar ferðaskrifstofur muni fylgja í kjölfarið Viðskipti innlent Tiltölulega lítil áhrif af breytingum Seðlabankans Viðskipti innlent Greiðir sér út allt að fimmtíu milljónir Viðskipti innlent Tango Travel hættir vegna gjaldþrots Play Viðskipti innlent Myndaveisla: Afreksfólk atvinnulífsins fjölmennti í höllina Framúrskarandi fyrirtæki Færir sig í Borgartúnið eftir stutta dvöl hjá ÍSÍ Viðskipti innlent Töldu hættu stafa af einkaþotufyrirtækinu sem var svipt starfsleyfi Viðskipti innlent Sverrir Einar söðlar um og selur Þrastalund Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bauhaus styrkir góð málefni fyrir jólin „Ég fæ hroll þegar fólk segist hafa notað sama lykilorðið í 20 ár“ Forvarnarverðlaun VÍS: „Öryggi er ekki samkeppnismál“ ÍMARk rýnir í markaðsheim framtíðarinnar Tengiltvinnari fyrir taugatrekkta Peltor og Dynjandi saman í 60 ár Framlína heilbrigðisþjónustunnar kallar eftir liðsauka Persónuleg reynsla varð að atvinnurekstri Rafmagnað fyrsta stefnumót við Nissan Ariya Í stuði í 130 ár: Virkjanir sem leystu af dísilvélar og knúðu síldarbæ KLAK health býður sprotafyrirtæki í heilsutækni velkomin Hreinsun þakrenna fyrirbyggir skemmdir Sjá meira