Mergjað mark í MLS í nótt Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. október 2021 12:31 Dairon Asprilla verður líklega næsti handhafi Puskás-verðlaunanna. getty/Shaun Clark Dairon Asprilla skoraði stórkostlegt mark í leik Portland Timbers og San Jose Earthquakes í MLS-deildinni í nótt.
Kólumbíumaðurinn Yimmi Chara kom Portland yfir á 34. mínútu og eftir tíu mínútur í seinni hálfleik bætti landi hans, Asprilla, öðru og öllu eftirminnilegra marki við. Asprilla fékk þá stungusendingu inn fyrir vörn San Jose. Markvörðurinn JT Marcinkowski var á undan í boltann en missti hann svo klaufalega frá sér í baráttu við Asprilla. Sá kólumbíski hélt boltanum einu sinni á lofti og átti svo hjólhestaspyrnu frá hægra vítateigshorninu. Asprilla náði góðu skoti og boltinn skoppaði inn í markið. Þetta mergjaða mark má sjá hér fyrir neðan frá tveimur mismunandi sjónarhornum. Hey @SportsCenter you might wanna give this one a look. #RCTID pic.twitter.com/ll8pxBtVKy— Portland Timbers (@TimbersFC) October 28, 2021 He had the audacity. #RCTID pic.twitter.com/8pNByMXvGL— Portland Timbers (@TimbersFC) October 28, 2021 Mark Asprillas hefur skiljanlega vakið mikla athygli og það hefur meðal annars verið orðað við Puskás verðlaunin sem eru veitt fyrir fallegasta mark ársins. Asprilla hefur átt gott tímabil með Portland og skorað tíu mörk og lagt upp þrjú í 32 deildarleikjum. Portland er í 4. sæti Vesturdeildarinnar með 49 stig. Hinn 29 ára Asprilla hefur leikið með Portland síðan 2015. Hann er einn fjögurra Kólumbíumanna í leikmannahópi Portland.
MLS Mest lesið Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Náði að plata Óskar Örn Sport Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Enski boltinn Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Enski boltinn Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Fótbolti „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Fótbolti Fleiri fréttir Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Sjá meira