Hvassviðri á Vestfjörðum í dag og stormur á Suðurlandi á morgun Atli Ísleifsson skrifar 25. október 2021 07:07 Smám saman lægir síðar í dag og rofar til. Vísir/Vilhelm Tvær minniháttar lægðir hringsóla nú út af Norður- og Austurlandi og úrkomukerfi þeim tengd hreyfast yfir landið.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að norðaustlæg átt verði ríkjandi, allhvöss eða hvöss á Vestfjörðum, en annars hægari. Smám saman lægir síðar í dag og rofar til. Hiti verður á bilinu núll átta stig þar sem mildast verður syðst. „Við Nýfundnaland er vaxandi lægð á hreyfingu norðaustur og hennar fer að gæta á morgun, með austanhvassviðri eða -stormi og rigningu syðst á landinu seinni partinn. Heldur hægara og úrkomuminna fyrir norðan, en rignir einnig talsvert austanlands um kvöldið og hlýnar.“ Segir að reikna megi með vindhviðum að 35 til 40 metrum á sekúndu undir Eyjafjöllum, í Mýrdal og Öræfum síðdegis. Slíkir vindar séu varasamir ökutækjum, sem taia á sig mikinn vind. Á miðvikudag er spáð norðaustanátt með rigningu víða á landinu og slyddu til fjalla, en þurrviðri suðvestan til og heldur kólnandi veðri.“ Spákortið fyrir klukkan 15 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Vaxandi austan og norðaustanátt, 10-18 m/s og rigning seinnipartinn, en 18-25 m/s syðst á landinu. Talsverð rigning um tíma A-til. Dregur úr vindi og úrkomu S-lands um kvöldið. Hiti 2 til 9 stig, mildast syðst. Á miðvikudag: Norðaustan 10-18 m/s N-til, en annars hægari vindur. Rigning eða slydda víða um land, en lengst af úrkomulítið S-lands. Hiti breytist lítið. Á fimmtudag, föstudag og laugardag: Ákveðin norðaustanátt NV-til, annars hægari. Dálítil rigning eða slydda með köflum og hiti 0 til 6 stig yfir daginn. Á sunnudag: Útlit fyrir hæga norðanátt, birtir víða til og kólnar.
Veður Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Sjá meira