Bætir aftur í vind í kvöld og stormur víða á morgun Atli Ísleifsson skrifar 18. október 2021 07:22 Hiti á landinu verður á bilinu þrjú til ellefu stig þar sem hlýjast verður syðst. Á Vestfjörðum verður þó norðaustan átján til 23 metrar á sekúndu með slyddu og hita núll til þrjú stig. Veðurstofan Mildur loftmassi hefur nú náð yfir landið eftir hina hvössu austanátt sem herjaði á landann í gær. Búast má við austan strekkingi með rigningu, en undantekningin á þeirri stöðu eru Vestfirðir, þar sem útlit er fyrir norðaustan hvassviðri eða stormi og svalara veðri. Verður úrkoman þar því væntanlega slyddukennd.
Hiti á landinu verður á bilinu þrjú til ellefu stig þar sem hlýjast verður syðst. Á Vestfjörðum verður þó norðaustan átján til 23 metrar á sekúndu með slyddu og hita núll til þrjú stig. Gular viðvaranir taka gildi síðar í dag á Breiðafjarðarsvæðinu og Austfjörðum. Gul viðvörun er þegar í gildi á Vestfjörðum. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að í kvöld og nótt bæti síðan í vind heilt yfir á landinu og á morgun verður norðaustan hvassviðri eða stormur nokkuð víða. „Útlit er fyrir rigningu eða slyddu norðan- og austanlands, en snjókoma á þeim slóðum seinnipartinn því það kólnar smám saman með norðanáttinni. Yfirleitt þurrt veður sunnan heiða. Taka má fram að stór hluti höfuðborgarsvæðisins verður væntanlega í skjóli á morgun. Á miðvikudag er síðan norðanátt í kortunum með björtu veðri sunnan- og vestanlands, en dálítil él norðaustantil. Það lægir fljótlega á vestanverðu landinu, en stíf norðanáttin heldur velli austanlands fram undir kvöld. Á fimmtudag er síðan útlit fyrir rólegan vind um allt land og ekki er búist við úrkomu að neinu ráði,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Gular viðvaranir taka gildi síðar í dag á Breiðafjarðarsvæðinu og Austfjörðum. Gul viðvörun er þegar í gildi á Vestfjörðum.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Norðaustan 15-23 m/s. Rigning eða slydda norðan- og austanlands, en snjókoma á þeim slóðum seinnipartinn. Þurrt veður sunnan heiða. Hiti 2 til 9 stig framan af degi, mildast syðst, en kólnar síðdegis. Á miðvikudag: Norðan 8-18, hvassast með austurströndinni. Léttskýjað sunnan- og vestanlands, en dálítil él norðaustantil. Lægir á vestanverðu landinu eftir hádegi, lægir einnig og styttir upp austanlands um kvöldið. Hiti kringum frostmark, en frost 1 til 7 stig um kvöldið. Á fimmtudag: Breytileg átt, víða 3-8. Þurrt á landinu og bjart með köflum. Frost 0 til 5 stig yfir daginn, en frostlaust með suður- og vesturströndinni. Á föstudag: Vaxandi suðaustanátt. Fer að rigna sunnan- og vestanlands, og hiti 2 til 7 stig. Þurrt norðaustantil á landinu og hiti kringum frostmark. Á laugardag (fyrsti vetrardagur): Suðlæg átt og víða rigning. Hiti 3 til 8 stig. Á sunnudag: Suðlæg átt og dálitlir skúrir, en yfirleitt þurrt á Norður- og Austurlandi. Hiti 1 til 6 stig.
Veður Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Margaret Hamilton er látin Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent Fleiri fréttir Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Sjá meira